Hoppa yfir valmynd
24. september 2021 Dómsmálaráðuneytið

Upplýsingaþjónusta á kjördag vegna kosninga

Atkvæði í kjörkassa - myndHari
Upplýsingar á kjördag um kjörskrá, kjörstaði og atriði er lúta að framkvæmd alþingiskosninga laugardaginn 25. september 2021.

Dómsmálaráðuneytið

Í dómsmálaráðuneytinu verða veittar upplýsingar á kjördag, laugardaginn
25. september 2021, frá kl. 9 að morgni til kl. 22 að kvöldi.
Símanúmer eru 545-9050 og 545-9070.

Þjóðskrá Íslands

Þjóðskrá Íslands verður með símavakt á kjördag, laugardaginn 25. september 2021, frá kl. 10 að morgni til kl. 22 að kvöldi. Þar verða meðal annars veittar upplýsingar um hvar kjósandi er á kjörskrá.
Símanúmerið er 515-5300. Einnig má hafa samband með tölvupósti á [email protected].

Kjörstaðir og kjörskrá

Sveitarfélög auglýsa kjörstaði vegna alþingiskosninga 25. september 2021 og mörg þeirra birta einnig upplýsingar um kjördeildir á vefjum sínum. Dómsmálaráðuneytið hefur safnað upplýsingum um kjörstaði og tengt í slíkar upplýsingar á vefjum sveitarfélaganna. Enn eru allnokkur sveitarfélög ótengd, meðal annars vegna þess að upplýsingar hafa ekki birst á vefjum þeirra. 

Kjósendur geta kannað hvar þeir eru skráðir á kjörskrá.

Atkvæðagreiðsla fyrir þá sem verða í sóttkví eða einangrun vegna Covid-19 á kjördag

Kjósendur sem eru í sóttkví eða einangrun vegna Covid-19 mega ekki greiða atkvæði á almennum kjörstöðum eða utankjörfundarstöðum. Þeim er hins vegar heimilt að greiða atkvæði utan kjörfundar á sérstökum kjörstöðum með aðstoð kjörstjóra.
Atkvæðagreiðsla á sérstökum kjörstöðum hófst 20. september en opnunar- og lokunartími hvers kjörstaðar er mismunandi eftir umdæmum sýslumanna.

Á vefslóðinni island.is/covidkosning2021 er að finna nánari upplýsingar um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar og þar er einnig unnt að sækja um kosningu á dvalarstað.
Ef óskað er nánari upplýsinga er unnt að senda tölvupóst á netfangið [email protected]

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum