Hoppa yfir valmynd
11. mars 2022 Heilbrigðisráðuneytið

Unnið að bættri þjónustu við einstaklinga með endómetríósu

Landspítali hefur að ósk heilbrigðisráðherra tekið saman upplýsingar um fjölda aðgerða vegna greiningar og meðferðar á endómetríósu (legslímuflakki) sem kalla ekki á sjúkrahúslegu og spítalinn telur unnt að útvista til annarra stofnana eða sjálfstætt starfandi sérfræðinga með þekkingu á sjúkdómnum. Ráðherra hefur jafnframt skipað starfshóp sem vinnur að því að greina hvernig þjónustu við einstaklinga með endómetríósu er nú háttað og gera tillögur um úrbætur.

Hér á landi eru á hverjum tíma um 60-70 sjúklingar í virkri meðferð við endómetríósu á göngudeildum Landspítala. Í byrjun þessa árs biðu um 50 einstaklingar eftir fyrsta viðtali vegna endómetríósu á spítalanum og 22 biðu eftir aðgerð. Greining sjúkdómsins er oft erfið þar sem einkennin geta verið einstaklingsbundin og óljós. Því er greiningartíminn oft langur, eða að meðaltali 6-7 ár.

Sjúkdómurinn kemur gjarna fram fyrst á unglingsárunum – og mikilvægt er að stytta greiningartíma m.a. með því að auka þekkingu framlínustarfsfólks á sjúkdómnum, s.s. skólahjúkrunarfræðinga og heimilislækna; skýra hlutverk hvers þjónustustigs heilbrigðisþjónustu og boðleiðir þeirra í milli. „Þetta er markmiðið með þeirri vinnu sem nú stendur yfir og hún er mikilvæg, því hér er um sjúkdóm að ræða sem í mörgum tilvikum skerðir lífsgæði fólks verulega ef ekkert er að gert. Það var mikið framfaraskref þegar þverfaglegt endómetríósuteymi var sett á laggirnar hjá Landspítalanum 2017. Það er mikilvægt að styrkja það góða starf, ásamt því að setja í forgang að stytta biðlista og tryggja að þessi hópur fái aðstoð sem fyrst.“ segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. 

Næstu skref samkvæmt ákvörðun ráðherra:

  • Starfshópur skili tillögum í apríl: Í ljósi mögulegra tækifæra til umbóta varðandi greiningu og meðferð sjúkdómsins skipaði ráðherra nýverið starfshóp undir forystu ráðuneytisins með fulltrúum þessara aðila auk fulltrúa Samtaka um endómetríósu og sjálfstætt starfandi sérfræðinga. Hópurinn á að skila ráðherra niðurstöðum sínum um stöðu þjónustunnar ásamt tillögum til úrbóta, þar á meðal um bætta verkferla milli þjónustustiga.

    Stefnt að útvistun aðgerða: Að mati Landspítala er nú á fjórða tug aðgerða vegna greiningar á endómetríósu sem hægt væri að útvista til annars stigs þjónustu, sem eru aðrar heilbrigðisstofnanir og sjálfstætt starfandi sérfræðingar. Fyrrnefndur starfshópur mun fara nánar yfir málið og verði útvistunin talin fýsileg mun heilbrigðisráðuneytið tryggja Landspítala fjármagn sem gerir slíka útvistun mögulega.

  • Samningar við sjálfstætt starfandi sérfræðinga um greiningar og meðferð: Í framhaldi af vinnu starfshópsins mun heilbrigðisráðuneytið meta kosti þess að fela Sjúkratryggingum Íslands að ganga til samninga við sjálfstætt starfandi sérfræðinga um kviðsjáraðgerðir til greininga og meðferða á endrómetríósu á grundvelli skilgreinds verklags.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum