Hoppa yfir valmynd
21. október 2022 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á ostum frá Noregi.

Með vísan til 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum og til reglugerðar um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum frá Noregi nr. 1152/2022, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á smurostum frá Noregi og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið.

1. janúar – 31. desember 2023.

 

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Úr tollskrárnr.:

 

 

kg

%

kr./kg

0406.3000

Smurostur

01.01.-31.12.23

13.000

0

0

Berist umsóknir um meira magn um innflutning en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Úthlutun er ekki framseljanleg.

Umsóknar- og tilboðsferli vegna úthlutunar tollkvótans fer fram með rafrænum hætti á vefkerfinu tollkvoti.is. Nýskráning notenda í vefkerfið fer fram hjá matvælaráðuneytinu. Ef óskað er eftir nýskráningu notenda skal hafa samband við ráðuneytið í síma 545-9700 eða á [email protected]. Sjá eftirfarandi ítarefni vegna úthlutunar tollkvóta:

Leiðbeiningar tollkvóti (PDF)
Vefkerfi fyrir úthlutun tollkvóta (PDF)

Opnað verður fyrir umsóknir á tollkvoti.is; mánudaginn 24. október 2022 og skulu umsóknir berast fyrir kl. 23.59, mánudaginn 7. nóvember 2022.

Matvælaráðuneytinu, 21. október 2022.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum