Hoppa yfir valmynd
2. nóvember 2022 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur

Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur - myndiStock/StockSeller_ukr

Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn þann 1.nóvember. Matvælaráðuneytinu bárust 64 gild tilboð um kaup og sölutilboð voru 19.

Tilboð voru send með rafrænum hætti í gegnum AFURÐ sem er greiðslukerfi landbúnaðarins og liggur niðurstaða markaðarins nú fyrir.

Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð, sem við lok tilboðsfrests var 351 kr. fyrir hvern lítra. Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverð sem er jafnt hámarksverði, þ.e. 351 kr./ltr.

  • Fjöldi gildra tilboða um sölu á greiðslumarki mjólkur voru 19
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup voru 64
  • Fjöldi kauptilboða undir jafnvægisverði/hámarksverði var 6
  • Greiðslumark sem boðið var fram (sölutilboð) voru alls 1.897.271 lítrar
  • Greiðslumark sem óskað var eftir (kauptilboð) voru 3.011.000 lítrar
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða (jafnvægismagn) voru 1.897.271 lítrar að andvirði 665.937.207,- kr
  • Sérstök úthlutun til nýliða er 5% af sölutilboðum eða 94.861 lítrar, fjöldi gildra kauptilboða frá nýliðum voru 7 

Sala greiðslumarks fer nú fram samkvæmt gildum tilboðum. Matvælaráðuneytið mun nú senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast í Afurð.

 

Tafla

 

Úr reglugerð um stuðning í nautgriparækt nr. 348/2022:

Jafnvægisverð: Það verð sem myndast þegar framboðið magn er jafnt og eftirspurt magn eða lægsta verð sem jafnvægismagn getur verið selt og keypt á.

Greiðslumarki sem boðið er til sölu á hærra verði en jafnvægisverði skal vísað frá markaði og á sama hátt kauptilboðum sem eru lægri en jafnvægisverð.

Öll viðskipti sem fara fram á viðkomandi markaðsdegi skulu fara fram á því jafnvægisverði sem markaðurinn gefur í það sinn eða hámarksverði.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum