Hoppa yfir valmynd
5. desember 2022 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Nærri 90 doktorar brautskráðir frá Háskóla Íslands á einu ári

Doktorarnir sem viðstaddir voru athöfnina ásamt háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Vigdísi Finnbogadóttur, rektor, aðstoðarrektor vísinda og forsetum fræðasviða skólans - myndKristinn Ingvarsson / HÍ

Háskóli Íslands fagnaði þeim 86 doktorum sem brautskráðir hafa verið frá skólanum á síðustu 12 mánuðum á árlegri Hátíð brautskráðra doktora sem fram fór í Hátíðarsal HÍ á fullveldisdaginn. Þetta er næstmesti fjöldi doktora sem skólinn hefur brautskráð á einu ári. Viðstaddar athöfnina voru Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, sem einnig ávarpaði gesti, og Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands.

Í fyrsta sinn í þrjú ár var hátíðin haldin með hefðbundnu sniði þar sem doktorar, forsetar fræðasviða HÍ, rektor skólans og aðstoðarrektor ásamt gestum komu saman og fögnuðu. Sem fyrr segir hafa 86 aðilar lokið doktorsnámi frá HÍ frá 1. desember 2021 og tóku þeir við gullmerki skólans við þetta hátíðlega tilefni. Doktorarnir koma af öllum fimm fræðasviðum skólans og í hópnum eru 40 karlar og 46 konur. Sameiginlegar doktorsgráður með erlendum háskólum eru fjórar talsins að þessu sinni en auk þess útskrifaðist einn nemandi sameiginlega frá tveimur fræðasviðum skólans. 29% doktoranna eru með erlent ríkisfang.

Sá merkilegi áfangi náðist í maí á þessu ári að þúsundasti doktorinn brautskráðist frá Háskóla Íslands. Sú doktorsvörn fór að mestu leyti fram í gegnum fjarfundabúnað sem endurspeglar þær breytingar og tækifæri sem heimsfaraldurinn hafði í för með sér fyrir háskólastarf.

Aðeins sex ár síðan fimmhundruðasti doktorinn var brautskráður

Áslaug Arna ávarpaði brautskráða doktora við athöfnina og færði þeim innilegar hamingjuóskir með mikilvægan áfanga.

„Það er ástæða til að fagna því að þessi merka stofnun, Háskóli Íslands, ein helsta táknmynd fullveldis þjóðarinnar, náði þeim áfanga í maí á þessu ári að brautskrá þúsundasta doktorinn í rétt rúmlega 110 ára gamalli sögu sinni,“ sagði ráðherra í ávarpi sínu. „Aðeins eru sex ár frá því að skólinn útskrifaði fimmhundruðasta doktorinn þannig að aukningin sýnir mikinn kraft og metnað skólans til að efla rannsóknir og komast ofar í röð æðri menntastofnana í alþjóðlegum samanburði.“

Í ávarpi sínu fyrir hönd nýbrautskráðra doktora tók Rúna Sif Stefánsdóttir, doktor í íþrótta- og heilsufræði, undir með áherslu háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra á mikilvægi uppbyggingar þekkingarsamfélags á Íslandi. „Doktorsgráðan er lykill að frekari sigrum, ekki bara fyrir okkur sem erum hér inni heldur fyrir samfélagið allt sem þarf stöðugt nýja þekkingu til að takast á við nýjar áskoranir,“ sagði Rúna.

Öflugt doktorsnám styrkir alþjóðlega stöðu háskólans

„Öflugt doktorsnám við HÍ hefur styrkt stöðu skólans sem alþjóðlega viðurkennds rannsóknaháskóla. Doktorsnám við skólann er eftirsótt af innlendum og erlendum nemendum og verkefnin eru iðulega unnin í alþjóðlegu samstarfi. Um leið gerir það skólanum kleift að sinna hlutverki sínu sem stærsti og breiðasti háskóla þjóðarinnar, háskóli sem brautskráir nemendur á öllum námsstigum á 5 fræðasviðum og í 26 deildum. Þetta er afar mikilvægt þar sem rannsóknir og góð og fjölbreytt menntun eru jafnan talin vera ein helsta forsenda hagvaxtar og aukinnar velsældar þjóða,“ skrifa þau Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, aðstoðarrektor vísinda, í ávarpi í riti sem gefið er út í tilefni hátíðar brautskráðra doktora. Þar er að finna yfirlit yfir brautskráða doktora á tímabilinu 1. desember 2021 til 1. desember 2022 auk ýmiss fróðleiks um þróun doktorsnáms við HÍ á undanförnum árum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum