Hoppa yfir valmynd
31. janúar 2023 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Lilja heimsótti Mid-Atlantic ferðakaupstefnuna

Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra heimsótti Mid-Atlantic ferðakaupstefnu Icelandair ásamt Elizu Reid forsetafrú, í fylgd Boga Nils Boga­sonar, for­stjóra Icelandair. Um 700 kaup­endur og selj­end­ur voru skráðir til þátt­töku á ferðakaupstefnunni sem fram fór í Laug­ardals­höll á föstudaginn.

,,Mid-Atlantic ferðakaupstefnan er einn af lykilviðburðum til að kynna íslenska ferðaþjónustu og leiða saman kaupendur og seljendur víðs vegar af landinu og beggja vegna Atlantshafsins. Hér fara fram yfir 5.400 fundir með það að markmiði að skapa tengsl og verðmæt viðskiptasambönd sem mörg endast í áratugi. Það er frábært að sjá gróskuna og fagmennskuna hjá okkar öflugu ferðaþjónustuaðilum", segir Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

  • Lilja heimsótti Mid-Atlantic ferðakaupstefnuna - mynd úr myndasafni númer 1

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum