Hoppa yfir valmynd
2. mars 2023 Heilbrigðisráðuneytið

Ráðherra úthlutaði styrkjum úr Lýðheilsusjóði

Frá úthlultun lýðheilsustyrkja 2023 - mynd

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra úthlutaði nýverið rúmum 86 milljónum króna í styrki úr Lýðheilsusjóði til 150 verkefna og rannsókna. Að þessu sinni var áhersla lögð á verkefni sem miða að því að efla geðheilsu barna og fullorðinna, efla félagsfærni og draga úr einmanaleika. Einnig voru veittir styrkir til verkefna á sviði áfengis-, vímu- og tóbaksvana og verkefni tengd næringu, hreyfingu og kynheilbrigði. Við mat á umsóknum var litið sérstaklega til verkefna sem styðja við minnihlutahópa, stuðla að jöfnuði til heilsu og tengjast nýsköpun á sviði forvarna og heilsueflingar.

Ráðherra úthlutaði styrkjunum að fengnum tillögum stjórnar Lýðheilsusjóðs sem mat umsóknir út frá því hvernig þær falla að hlutverki sjóðsins. Áður höfðu fagráð embættis landlæknis metið allar umsóknir sem bárust.

Lýðheilsusjóður er starfræktur á grundvelli laga um landlækni og lýðheilsu og er í umsjá landlæknisembættisins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum