Hoppa yfir valmynd
29. mars 2023 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Ferðaþjónustan sýndi seiglu og sveigjanleika

Ferðaþjónustan sýndi seiglu og sveigjanleika - myndBirgir Ísleifsson
Ferðamálaráðherra ávarpaði ráðstefnu um þjóðhagslegt mikilvægi ferðaþjónustu 
 
„Íslenska ferðaþjónustan er búin að ná til baka 95 prósent af fyrri getu“ sagði Lilja Dögg Alfreðsdóttir ferðamálaráðherra í ávarpi sínu á ráðstefnunni Þjóðhagslegt mikilvægi ferðaþjónustunnar. 
 
Ráðstefnan var haldin af menningar- og viðskiptaráðuneytinu í samstarfi við Ferðamálastofu og Samtök ferðaþjónustunnar. Ráðherra talaði þar um mikilvægi ferðaþjónustunnar fyrir íslenskt hagkerfi.
 
Sagðist hún stolt af fyrirtækjum í ferðaþjónustu fyrir það hvernig þau gátu komist í gegnum heimsfaraldurinn með stuðningi mótvægisaðgerða stjórnvalda. Hrósaði ráðherra greininni fyrir seiglu og sveigjanleika. 
 
„Það verða ekki alvöru lífskjör og góður ávinningur fyrir alla í landinu nema það sé afgangur á greiðslujöfnuðinum. Við séum með viðskiptaaðgang. Um leið og ferðaþjónustan fer að taka við sér þá erum við komin í þennan afgang,“ sagði ráðherra í opnunarávarpi sínu. 

„Ferðaþjónustan bætir samkeppnishæfi Íslands og eykur lífsgæði.“

Upptöku af ráðstefnunni má sjá hér fyrir neðan.  Á ráðstefnunni tóku einnig til máls Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, Jane Stacey yfirmaður ferðamála hjá OECD, Grímur Sæmundsen forstjóri Bláa lónsins og Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri SAF sem kynnti nýtt mælaborð, Ferðagögn.
 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum