Hoppa yfir valmynd
29. mars 2023 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra ávarpaði leiðtogafund Bandaríkjaforseta um lýðræði

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flytur ávarp á leiðtogafundi Bandaríkjaforseta - mynd

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti ávarp á leiðtogafundi Joe Biden Bandaríkjaforseta um lýðræði, Summit for Democracy, sem fram fór með rafrænum hætti í dag. Fundurinn er liður í alþjóðlegu lýðræðisátaki sem hófst með leiðtogafundi í desember 2021.

Forsætisráðherra minnti í ávarpi sínu á að lýðræðið væri ekki sjálfgefið heldur þurfi að styrkja það og vernda gegn einræðistilburðum. Þá þurfi að tryggja að tækninýjungar og gervigreind verði notuð til að efla lýðræðið í stað þess að grafa undan því.

Þá ræddi forsætisráðherra stríðið í Úkraínu og vonir um að raunverulegur árangur náist á leiðtogafundi Evrópuráðsins í Reykjavík í maí við að tryggja að Rússar verði látnir sæta ábyrgð fyrir stríðsglæpi sína. Einnig þurfi sérstaklega að huga að órjúfanlegum tengslum jafnréttis og mannréttinda sem grundvelli lýðræðis.

Ávarp forsætisráðherra var hluti af umræðum sem forseti Sambíu, Hakainde Hichilema, stýrði. Meðal annarra ræðumanna voru Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, og Emmanuel Macron, forseti Frakklands.

Samhliða fundinum í dag voru spilaðar upptökur af yfirlýsingum þátttökuríkja en forsætisráðherra kom þar fram fyrir hönd Íslands. 

 

 

  • Forsætisráðherra ávarpaði leiðtogafund Bandaríkjaforseta um lýðræði - mynd úr myndasafni númer 1

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum