Hoppa yfir valmynd
19. apríl 2023 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Hvati - Styrkveiting til verkefna á málefnasviðum ráðherra vorið 2023

Hvati - Styrkveiting til verkefna á málefnasviðum ráðherra vorið 2023 - myndStjórnarráð Íslands

Menningar- og viðskiptaráðuneytið veitir Hvata - styrki til verkefna á málefnasviðum menningar- og viðskiptaráðherra.

Styrkjum skal úthlutað til ákveðinna verkefna á vegum félaga og samtaka til eins árs í senn. Verkefnin skulu ekki njóta lögbundins stuðnings eða falla undir sjóði eða sérstaka samninga. Þá eru hvorki veittir styrkir til nefndarsetu eða styrkir til BA/BS-, eða meistaraprófsverkefna.

Næsta styrkveiting fer fram í maí 2023. Umsóknir þurfa að berast eigi síðar en 15. maí nk. til að verða teknar til greina.

Samkvæmt úthlutunarreglum mun matshópur skipaður af ráðherra meta umsóknir en horft verður til ýmissa þátta við úthlutunina, m.a. hvort verkefnin þyki hafa gildi og mikilvægi fyrir stefnu viðkomandi málaflokks, og hvort markmið og árangursmælikvarðar séu skýrir. Frekari upplýsingar um styrkhæfi, mat á umsóknum og viðmið má finna í úthlutunarreglum.

Eftirtalin gögn skulu fylgja umsókn eftir því sem við á:

  • upplýsingar um umsækjanda eða umsækjendur, aðra þátttakendur og samstarfsaðila, ef einhverjir eru,
  • nafn þess sem annast samskipti við ráðuneyti,
  • nákvæm lýsing á verkefni, markmiðum þess og þýðingu fyrir umsækjanda og aðra,
    tíma- og verkáætlun,
  • fjárhagsáætlun, þar sem fram koma m.a. upplýsingar um áætlaðan kostnað, tekjur, hlutdeild annarra í kostnaði við verkefnið og styrkfé sem verkefnið hefur hlotið eða hefur sótt um,
  • staðfest gögn frá samstarfsaðilum sem og önnur gögn til stuðnings umsókn

Umsóknum skal skilað rafrænt á vef menningar- og viðskiptaráðuneytisins.

Sjá reglur sjóðsins

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum