Hoppa yfir valmynd
3. maí 2023 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Lilja Dögg opnaði HönnunarMars í Hörpu

Frá setningu HönnunarMars 2023 í Hörpu. - myndAldís Pálsdóttir
HönnunarMars var settur með formlegum hætti í dag. Opnunarhóf HönnunarMars 2023 fór fram í Hörpu þar sem Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar tóku til máls.

„Þessi uppskeruhátíð er einn af skemmtilegustu vorboðunum. Á HönnunarMars eru tækifæri til að upplifa, læra, njóta og tengjast, og fjölbreytileiki viðburðanna færir sönnur á því hvernig íslensk hönnun og arkitektúr eru mikilvægt breytingafl og tæki til nýsköpunar sem nýst getur samfélaginu okkar á fjölbreyttari hátt en marga órar fyrir,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra.

Á HönnunarMars sameinast allar greinar hönnunar. Fimmtánda árið í röð er HönnunarMars boðberi nýrra hugmynda, innblásturs, skapandi lausna og bjartsýni þar sem framsækin hönnun og nýjungar leiða saman sýnendur og gesti. Hátíðin stendur yfir til 7. maí.

Í ár endurspegla 100 sýningar, 400 þátttakendur og 100 viðburðir það sem efst er á baugi á sviði hönnunar og arkitektúrs, veita innsýn inn í nýjar lausnir og hugmyndir og sýna nýjar leiðir til að takast á við áskoranir samtímans til innblásturs fyrir þátttakendur og gesti.

Skapandi tilraunir, endurvinnsla, nýsköpun, endurnýting, verðmætasköpun og leikur eru rauður þráður í dagskránni þar sem ólíkar hönnunargreinar á borð við arkitektúr, grafíska hönnun, fatahönnun, vöruhönnun og stafræna hönnun varpa ljósi á þá miklu grósku sem á sér stað í hönnun hér á landi.

Dagskrá HönnunarMars 2023 má nálgast HÉR.
  • Lilja Dögg opnaði HönnunarMars í Hörpu - mynd úr myndasafni númer 1

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum