Hoppa yfir valmynd
16. maí 2023 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Samtal um nýtingu vindorku

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur undanfarnar vikur boðið til opinna funda um orkuskipti með áherslu á hlutverk vindorku.

Síðasti fundurinn í fundarröðinni fer fram á Hótel KEA á Akureyri í kvöld kl. 19.30. Vegna tæknilegra örðugleika reyndist því miður ekki hægt að hafa fundinn einnig í beinu streymi eins og til stóð, en upptaka af fundinum verður gerð aðgengileg að honum loknum. Beðist er velvirðingar á þessu.

 

Ráðherra skipaði síðastliðið sumar þriggja manna starfshóp sem fékk það hlutverk að skoða og gera tillögur til ráðherra um nýtingu vindorku, þ. á m. um lagaumhverfi og hvernig verði tekið á ýmsum álitamálum.

Starfshópurinn hefur nú skilað stöðuskýrslu til ráðherra og eru niðurstöður hennar til umræðu á fundunum og fulltrúar starfshópsins til svara um efni skýrslunnar.

Stöðuskýrslan dregur saman helstu álitaefni sem ramma inn umræðuna og hafa opnu fundirnir veitt almenningi tækifæri til þess að kynna sér stöðuskýrsluna og eiga beint samtal við starfshópinn og ráðherra, áður en hópurinn skilar formlegum niðurstöðum og tillögum að stefnumótun ríkisins í þessum efnum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum