Hoppa yfir valmynd
1. júní 2023 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Nýtt skipurit menningar- og viðskiptaráðuneytisins

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, hefur staðfest nýtt skipurit menningar- og viðskiptaráðuneytis sem tekur gildi í dag, 1. júní.

Samkvæmt nýju skipuriti fækkar skrifstofum ráðuneytisins um eina. Þannig færast verkefni fyrrum skrifstofu verðmætasköpunar yfir á skrifstofu ráðuneytisstjóra sem liður í aðhaldi hjá Stjórnarráði Íslands. Verðmætasköpun verður því eftir sem áður lykilþáttur í starfsemi ráðuneytisins auk þess sem nýtt eru tækifæri til hagræðingar í rekstri þess í samræmi við tilmæli ríkisstjórnarinnar.

Ráðuneytið starfar í tveimur fagskrifstofum, skrifstofu menningar og fjölmiðla og skrifstofu viðskipta og ferðamála. Þá starfar skrifstofa fjármála og gæðamála áfram þvert á ráðuneytið.

Um menningar- og viðskiptaráðuneytið:

Hlutverk menningar- og viðskiptaráðuneytis er að skapa menningarstarfi, viðskiptalífi og ferðaþjónustu umhverfi sem stuðlar að velsæld og verðmætasköpun fyrir samfélagið.

Helstu málefni sem ráðuneytið fer með eru menningarmál og málefni íslenskrar tungu, neytenda- og samkeppnismál, ferðaþjónusta, fjölmiðlar og skapandi greinar, almenn viðskiptamál og ríkisaðstoð.

Verkefni ráðuneytisins eru skilgreind í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands (31.1.2022).


Heimsmarkmiðin

Heimsmarkmið - mynd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum