Hoppa yfir valmynd
13. júní 2023 Heilbrigðisráðuneytið

Samningur undirritaður um uppsteypu bílakjallara Nýs Landspítala

Hjördís Ýrr Skúladóttir, formaður MS félags Íslands , Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, Þorvaldur Gissurarson forstjóri ÞG verk ehf og Sigríður Jóhannsdóttir, formaður Samtaka sykursjúkra á Íslandi (Diabetes Ísland) - myndNýr Landspítali

Í dag undirrituðu heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson, og Þorvaldur Gissurarson forstjóri ÞG verk samning Nýs Landspítala ohf. um uppsteypu á bílakjallara undir Sóleyjartorgi við hliðina á meðferðarkjarnanum. Auk þess vottuðu samninginn þær Hjördís Ýrr Skúladóttir, formaður MS félags Íslands og Sigríður Jóhannsdóttir, formaður Samtaka sykursjúkra á Íslandi (Diabetes Ísland).

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra: „Það er ánægjulegt að ennþá bætist við byggingar sem eru á framkvæmdastigi í uppbyggingu við nýjan Landspítala. Þessi viðbót verður mikilvæg í heildarsamhengi því það skiptir öllu að öll þjónusta við sjúklinga og gesti sé á heimsmælikvarða og með góðri aðkomu þá er hægt að tryggja betur góða umgjörð. Þessi áfangi er hluti þeirrar vegferðar að allar byggingar hér á svæðinu myndi eina heild,“.

Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH ohf: „Enn einn áfanginn í uppbyggingunni við Hringbraut. Fljótlega verður boðin út uppsteypan á nær 18.000 fermetra rannsóknahúsi svo og styttist í að uppsteypu meðferðarkjarnans ljúki,“.

Þorvaldur Gissurarson forstjóri ÞG verk ehf.: „Við hjá ÞG verk erum sátt við að geta tekist á við samninginn og verkefni sem þetta. Við munum einhenda okkur í verkið og allt okkar starfsfólk á staðnum mun verða einhuga í að uppsteypan gangi vel. Við ljúkum þessu á næsta ári eins og áætlanir segja til um,“.

Nánar um uppsteypu bílakjallara:

Bílakjallarinn verður á tveimur hæðum undir Sóleyjartorgi ásamt tengigöngum sunnan Landspítala. Verkið er liður í uppbyggingu nýs Landspítala við Hringbraut. Bílakjallarinn verður staðsettur milli meðferðarkjarna og fyrirhugaðrar byggingar dag-, göngu- og legudeildar Landspítalans austan við torgið, sem er sunnan megin við Gamla Landspítalann. Verða þar um 180 bílastæði fyrir þá sem eru að sækja þjónustu eða að koma í heimsóknir. Heildarflatarmál bygginganna er áætlað 7.500 m2.

Upphæð samnings er:

1.381.693.926 (91,4 % af kostnaðaráætlun)

Tölurnar eru án vsk. og á verðlagi apríl 2023

Á forsíðumynd:  Hjördís Ýrr Skúladóttir, formaður MS félags Íslands , Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, Þorvaldur Gissurarson forstjóri ÞG verk ehf og Sigríður Jóhannsdóttir, formaður Samtaka sykursjúkra á Íslandi (Diabetes Ísland)

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum