Hoppa yfir valmynd
14. júní 2023 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Skýrsla Fjölmiðlanefndar um framkvæmd laga um Ríkisútvarpið 2013-2023

Fjölmiðlanefnd hefur afhent menningar- og viðskiptaráðherra skýrslu um framkvæmd laga um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, 2013-2023. Skýrslan er unnin á grundvelli VII. bráðabirgðaákvæðis laga um Ríkisútvarpið nr. 23/2013. Gert er ráð fyrir að skýrslan verði kynnt á Alþingi í haust.

Lög um Ríkisútvarpið tóku gildi 22. mars 2013 og eru því tíu ár liðin frá gildistöku laganna hér á landi. Í skýrslu Fjölmiðlanefndar er einkum fjallað um helstu álitaefni sem upp hafa komið við framkvæmd laga um Ríkisútvarpið frá gildistöku þeirra árið 2013. Skýrslan veitir góða yfirsýn yfir framkvæmd einstakra lagaákvæða, þjónustusamninga sem gerðir hafa verið á grundvelli laganna og meðferð kvartana og ábendinga til Fjölmiðlanefndar. Einnig er farið yfir helstu niðurstöður árlegs mats Fjölmiðlanefndar á almannaþjónustuhlutverki Ríkisútvarpsins.

Þá hefur skýrslan að geyma umfjöllun um meginsjónarmið að baki fjölmiðlun í almannaþágu og umfjöllun um aðdraganda þess að sett voru lög um Ríkisútvarpið árið 2013 en með þeim brugðust íslensk stjórnvöld við tilteknum kröfum Eftirlitsstofnunar EFTA.

Í skýrslunni áréttar Fjölmiðlanefnd mikilvægi þess að umræða um stöðu og hlutverk Ríkisútvarpsins fari fram með hliðsjón af reynslu nágrannaríkja, fjölmiðlarannsóknum og þeim breytingum sem orðið hafa á fjölmiðlanotkun, tækniumhverfi, dreifileiðum og samkeppnisumhverfi fjölmiðla um allan heim.

Sjá nánar: Skýrsla Fjölmiðlanefndar 


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum