Hoppa yfir valmynd
15. júní 2023 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Jón Gunnar Vilhelmsson skipaður skrifstofustjóri skrifstofu stjórnunar og umbóta

Jón Gunnar Vilhelmsson. - mynd

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað Jón Gunnar Vilhelmsson í embætti skrifstofustjóra skrifstofu stjórnunar og umbóta hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Staðan var auglýst í apríl sl. Jón Gunnar var valinn í embættið að fengnum tillögum frá ráðgefandi hæfnisnefnd. Hann tók við embættinu 14. júní sl.

Jón Gunnar er með B.A. gráðu í hagfræði frá University of Toronto og M.Phil gráðu í alþjóðahagfræði og fjármálum frá University of Glasgow, auk þess að hafa verðbréfaréttindi. Hann hefur yfir 20 ára reynslu af stjórnun og rekstri og  yfirgripsmikla þekkingu á fjármálum og opinberri stjórnsýslu.

Jón Gunnar hefur starfað hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu síðastliðin 7 ár og verið staðgengill skrifstofustjóra á skrifstofu stjórnunar og umbóta í rúm 5 ár.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum