Hoppa yfir valmynd
23. júní 2023 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Slysavarnir styrktar í Skaftafelli og Öræfum

Menningar- og viðskiptaráðuneytið gerði þann 1. júní sl. viðauka við samning við Slysavarnafélagið Landsbjörg um öryggismál og slysavarnir ferðamanna (Safe Travel).

Markmiðið með viðaukanum er að efla viðbragðsgetu í Skaftafelli og Öræfum ef slys eða annað óhapp verður. Langt er í daglega viðbragðsþjónustu og mikil aukning ferðamanna á svæðinu kallar eftir auknu viðbragði.

„Gott neyðarviðbragð á fjölförnustu ferðamannastöðum landsins er gríðarlega mikilvægt. Ég hef lagt mikla áherslu á þetta sem ferðamálaráðherra. Það er einfaldlega nauðsynlegt að styrkja innviði á þessu svæði og auka enn frekar samvinnu á milli viðbragðsaðila á svæðinu; lögreglu, sjúkraflutninga og Vatnajökulsþjóðgarðs,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra.

Ráðuneytið styrkir Slysavarnafélagið Landsbjörg um 2.500.000 króna framlag. Samningurinn gildir frá 1. júní 2023 til 1. september 2023.

Slysavarnafélagið Landsbjörg verður með mannaðar vaktir á svæðinu í fjórar til fimm vikur í sumar. Í því felst meðal annars að björgunarsveitarfólk er á vakt allan sólarhringinn til að bregðast við og björgunarsveitarbílar eru á svæðinu. Landsbjörg verður með aðstöðu í Skaftafelli þar sem vakt er yfir daginn til að aðstoða ferðamenn og aðra vegfarendur.
  • Slysavarnir styrktar í Skaftafelli og Öræfum  - mynd úr myndasafni númer 1
  • Slysavarnir styrktar í Skaftafelli og Öræfum  - mynd úr myndasafni númer 2

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum