Hoppa yfir valmynd
27. júní 2023 Innviðaráðuneytið

Grímsnes- og Grafningshreppi ber að breyta gjaldskrá fyrir sundlaug

Innviðaráðuneytið hefur úrskurðað að gjaldskrá sveitarfélagsins Grímsnes- og Grafningshrepps fyrir sundlaug og íþróttamiðstöðina Borg sé ekki í samræmi við jafnræðis- og meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar og þar af leiðandi ólögmæt. Ráðuneytið gefur þau fyrirmæli í áliti sínu að sveitarfélagið breyti gjaldskrá sinni og færi hana í lögmætt horf.

Úrskurðurinn er birtur í áliti ráðuneytisins vegna stjórnsýslu sveitarfélagsins á grundvelli 112. gr. stjórnsýslulaga. Ráðuneytinu barst erindi árið 2021 vegna meintrar mismununar í gjaldtöku notenda af sundlaug og íþróttamiðstöð að Borg í Grímsnesi. Samkvæmt gjaldskrá sundlaugarinnar fengu íbúar sveitarfélagsins árskort á þrefalt lægra verði en aðrir notendur.

Í svörum sínum vegna málsins taldi sveitarfélagið mismunun í gjaldskrá byggja á málefnalegum ástæðum, þ.e. til að auka lýðheilsu íbúa og almenna hreyfingu. Jafnframt hélt sveitarfélagið því fram að rekstur sundlauga væri ólögbundið verkefni sveitarfélaga og því hefði það svigrúm til að ákvarða gjaldskrá. Þá taldi sveitarfélagið að ráðuneytið hefði ekki eftirlitshlutverk með ólögbundnum verkefnum sveitarfélaga. 

Í álitinu eru reifuð sjónarmið sem gilda um ólögbundin verkefni sveitarfélaga og gjaldtökuheimildir þeirra. Einnig eru reifaðar grundvallarreglur sem gjaldtaka sveitarfélaga verður að byggja á, s.s. jafnræði og meðalhóf. Þá er rökstutt að það fellur undir eftirlitshlutverk ráðuneytisins að taka til skoðunar hvort sveitarfélög hafi gætt að almennum reglum stjórnsýsluréttar í ólögbundnum verkefnum.

Í áliti sínu horfir ráðuneytið til þess að þótt markmið að huga að lýðheilsu íbúa kunni að vera málefnalegt, beri að gæta þess að ganga ekki lengra en nauðsynlegt er til að ná því. Ljóst er að ýmsar leiðir væru til staðar til að ná því markmiði að auka lýðheilsu og auka hreyfingu íbúa sveitarfélaga, svo sem með veitingu sérstakra íþrótta- og frístundastyrkja. Í álitinu segir að ráðuneytinu telji auðséð að hægt væri að ná slíkum markmiðum með verkefnum sem ekki fela í sér mismunandi gjaldtöku fyrir almenning.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum