Hoppa yfir valmynd
7. júlí 2023 Utanríkisráðuneytið

Flutningar forstöðumanna sendiskrifstofa

Reglubundnir flutningar forstöðumanna sendiskrifstofa í utanríkisþjónustunni standa nú fyrir dyrum. Eftirtaldir flutningar taka formlega gildi á næstunni samkvæmt ákvörðun utanríkisráðherra.

Árni Þór Sigurðsson sendiherra flyst frá sendiráði Íslands í Moskvu í starf sendiherra í Kaupmannahöfn frá 1. ágúst. Helga Hauksdóttir sendiherra flyst þá frá sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn í stöðu sendiherra og fastafulltrúa í Vín. Kristín A. Árnadóttir sendiherra lætur af störfum í utanríkisþjónustunni. 

Hildigunnur Engilbertsdóttir, þróunarsamvinnufulltrúi hjá fastanefnd Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í New York, verður forstöðumaður sendiráðs Íslands í Kampala í Úganda frá 1. ágúst og Þórdís Sigurðardóttir, núverandi forstöðumaður, flyst til starfa í ráðuneytinu.

Ásdís Bjarnadóttir flyst frá þróunarsamvinnuskrifstofu ráðuneytisins í starf forstöðumanns sendiráðs Íslands í Freetown í Síerra Leóne sem gert er ráð fyrir að verði opnað síðar á árinu. 

Ofangreindar breytingar eru háðar samþykki viðkomandi stjórnvalda. 

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum