Hoppa yfir valmynd
13. júlí 2023 Matvælaráðuneytið

Umsækjendur um starf forstöðumanns Lands og skógar

Úr Þórsmörk. - myndiStock/imagoDens

Þann 16. júní síðastliðinn var auglýst starf forstöðumanns nýrrar sameinaðrar stofnunar landgræðslu og skógræktar, Land og skógur.

Níu einstaklingar sóttu um starf forstöðumanns Lands og skógar. Matvælaráðherra skipar í embættið að undangengnu mati hæfnisnefndar. Hæfnisnefnd skipa Kristján Skarphéðinsson, fyrrum ráðuneytisstjóri, Björn Helgi Barkarson, skrifstofustofustjóri í matvælaráðuneytinu og Auður Bjarnadóttir, ráðgjafi hjá Vinnvinn. Hæfnisnefnd mun starfa í samræmi við lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og hefur til hliðsjónar reglur um ráðgefandi nefndir er meta hæfni umsækjenda um embætti við Stjórnarráð Íslands.

Lista yfir umsækjendur má nálgast hér.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum