Hoppa yfir valmynd
13. ágúst 2023 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Streymi: Morgunverðarfundur um aukna þjónustu við börn

Hér er hægt að fylgjast með morgunverðarfundi mennta- og barnamálaráðuneytisins um nýja framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar fyrir árin 2023 til 2027 mánudaginn 14. ágúst kl. 8:45–10:00. Á fundinum verða kynntar tillögur að aðgerðum og fyrirkomulagi þjónustu við börn með fjölþættan vanda.


Dagskrá

8:30 Morgunverður
8:45 Ávarp mennta- og barnamálaráðherra
8:55 Framkvæmdaáætlun um barnavernd
        Hlín Sæþórsdóttir, sérfræðingur hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu
9:25 Fyrirkomulag þjónustu við börn með fjölþættan vanda
        Funi Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá Barna- og fjölskyldustofu
        Arnar Haraldsson, ráðgjafi hjá HLH ráðgjöf
9:45 Umræður

Upptaka verður aðgengileg hér að viðburði loknum. 

Framkvæmdaáætlunin miðar að því að börn verði í öndvegi í allri nálgun. Hún leggur áherslu á mannréttindi og samfélagsþátttöku barna og að hver og ein aðgerð í áætluninni taki mið af öllum börnum óháð kynþætti, þjóðerni, trú, lífsskoðun, fötlun og kynhneigð. Nánari upplýsingar um framkvæmdaáætlunina er að finna í samráðsgátt stjórnvalda.

Við undirbúning áætlunarinnar var haft víðtækt samráð við helstu hagsmunaaðila um áherslur og forgangsröðun verkefna. Var þetta í fyrsta sinn sem börn voru þátttakendur í samráði við undirbúning framkvæmdaáætlunar á sviði barnaverndar. Litið var sérstaklega til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Þingsályktunartillaga um framkvæmdaáætlunina verður lögð fyrir Alþingi í haust.

Síðasta sumar skipaði Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, stýrihóp um fyrirkomulag þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Tillögur stýrihópsins liggja nú fyrir og verða kynntar á fundinum. Þeim er ætlað að tryggja að börn hafi aðgang að viðeigandi úrræðum þegar þeirra er þörf.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum