Hoppa yfir valmynd
18. ágúst 2023 Matvælaráðuneytið

Auglýst eftir umsóknum um jarðræktarstyrki og landgreiðslur

Opið er fyrir rafrænar umsóknir í Afurð fyrir jarðræktarstyrki og landgreiðslur fyrir árið 2023.

Umsóknum skal skilað fyrir miðnætti, mánudaginn 2. október nk. Til að geta sent inn umsókn í Afurð þarf að liggja fyrir árleg skýrsla um ræktun ársins 2023 í skýrsluhaldskerfinu Jörð.

Jarðræktarstyrkir

Styrkhæf ræktun er ræktun grass, korntegunda til dýrafóðurs og manneldis, ræktun olíujurta, þar með talin ræktun jurta til framleiðslu á lífdísil, enda sé hratið nýtt til fóðurs. Einnig ræktun grænfóðurs til beitar og uppskeru á ræktunarári. Beit búpenings telst ígildi uppskeru og því styrkhæf, einnig nýting kornhálms og annarra jurta til uppræktunar jarðvegs í útiræktun grænmetis. Ræktun vetraryrkja sem sáð er um mitt sumar og endurræktun túna er tekin út á ræktunarári.

Þau sem stofnuðu umsókn í júní sl. vegna fyrirframgreiðslu vegna kornræktar geta nú farið inn í umsóknina í Afurð og lokið skráningu hennar í samræmi við framkvæmdir á yfirstandandi ári. Fyrirframgreiðsla styrks dregst frá þeirri upphæð sem greidd verður í desember nk.

Landgreiðslur

Skilyrði fyrir landgreiðslum er uppskera til fóðuröflunar á ræktuðu landi sem umsækjanda er heimilt að nýta. Ef einungis hluti þess lands sem sótt er um styrk út á gefur uppskeru, skal skrá sérstaklega fjölda þeirra hektara.

Umsóknir berist á Afurð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum