Hoppa yfir valmynd
23. ágúst 2023 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Fræða ferðaþjónustuna um forvarnir og viðbrögð við áreitni og ofbeldi


Hæfnisetur ferðaþjónustunnar hefur birt fræðsluefni fyrir stjórnendur og starfsfólk í ferðaþjónustu um forvarnir og viðbrögð á vefnum hæfni.is.

Hæfnisetur ferðaþjónustunnar var stofnað árið 2017 og er hlutverk þess að efla hæfni og gæði í íslenskri ferðaþjónustu sem og starfsánægju og fagmennsku starfsfólks í atvinnugreininni. Hæfnisetrið er samstarfsverkefni stjórnvalda og aðila atvinnumarkaðarins og er með samning við menningar- og viðskiptaráðuneytið.

Hæfnisetrið leggur sérstaka áherslu á fræðslu og forvarnir varðandi áreitni og ofbeldi í atvinnulífinu.

„Því miður sýna rannsóknir að starfsfólk í ferðaþjónustu er í hættu á að verða fyrir kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustað. Samkvæmt rannsókn á kynferðislegri áreitni gagnvart starfsfólki í þjónustustörfum hafa 41% þeirra sem störfuðu í þjónustu á síðustu 10 árum orðið fyrir áreitni, sér í lagi konur,“ segir í tilkynningu frá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar.

Sömuleiðis staðfesta niðurstöður rannsóknarinnar Áfallasaga kvenna að konur á opinberum vettvangi og í ferðaþjónustu séu í mestri hættu að verða fyrir kynferðislegri áreitni og ofbeldi í vinnunni.

„Mikilvægt er að atvinnulífið geri sér grein fyrir að áreitni og ofbeldi á vinnustað geta haft veruleg áhrif á heilsu og vellíðan starfsfólks. Atvinnurekendum ber lagaleg skylda til að gera skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði og fyrirbyggja að starfsfólk þeirra verði fyrir ofbeldi eða áreitni.“

Í stýrihópi Hæfniseturs ferðaþjónustunnar sitja fulltrúar tilnefndir af SAF, ASÍ og Ferðamálastofu, auk menningar- og viðskiptaráðuneytisins.

Á vefnum hæfni.is er hægt að finna gagnlegt efni sem tengist forvörnum og viðbrögðum við áreitni og ofbeldi á vinnustað. Fjallað er um birtingarmyndir áreitni og ofbeldis og greint er frá því hvernig hægt er að fyrirbyggja óviðeigandi hegðun og samskipti.

Jafnframt er þar að finna gagnlegt stuðningsefni, m.a. frá Vinnueftirlitinu, Virk og SA. Má þar nefna samskiptasáttmála fyrir vinnustaði, bæklinga og blöðunga fyrir stjórnendur ásamt gátlista fyrir stjórnendur við meðferð EKKO mála (einelti, kynferðisleg áreitni, kynbundin áreitni og ofbeldi).

Hæfnisetur ferðaþjónustunnar hvetur því stjórnendur og starfsfólk til að kynna sér efnið og leggja áherslu á forvarnir til að stuðla að öruggu og góðu vinnuumhverfi innan ferðaþjónustunnar.

Sjá einnig: Ráðherra kynnti sér Hæfnisetur ferðaþjónustunnar

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum