Hoppa yfir valmynd
23. ágúst 2023 Innviðaráðuneytið

Stóflustunga tekin vegna þriðja áfanga Arnarnesvegar

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, tekur fyrstu skóflustungu á gröfu að þriðja áfanga Arnarnesvegar. - mynd

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra tók í dag fyrstu skóflustungu á gröfu að framkvæmdum vegna þriðja áfanga Arnarnesvegar, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar. Markmið framkvæmdanna er að auka umferðaröryggi, stytta ferðatíma og létta á umferð við Vatnsendaveg. Áætluð verklok eru haustið 2026

„Það er ánægjulegt að framkvæmdir á Arnarnesvegi séu hafnar því þessi nýja leið mun létta á umferð við Vatnsendaveg og stytta ferðatíma fólks. Auk þess munu undirgöng, brýr og göngu- og hjólastígar verða mikill samgöngubót og stórt umferðaröryggismál fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur," segir Sigurður Ingi.

Um er að ræða 1,9 km vegkafla frá Rjúpnavegi að Breiðholtsbraut, tvö hringtorg, tvenn undirgöng, tvær brýr fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og samtals 2,5 km göngu- og hjólastígar.

Verkið er fjármagnað af Samgöngusáttmálanum, sem gerður var 2019 milli ríkisins og sveitarfélaganna sex á höfuðborgarsvæðinu, þar sem markmiðið er m.a. að stuðla að auknu umferðaröryggi, hagkvæmum, greiðum og skilvirkum samgöngum á höfuðborgarsvæðinu með jafnri uppbyggingu innviða allra samgöngumáta.

Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkur, Kópavogs, Betri samgangna ohf., Veitna og Mílu. Verktakar eru Loftorka og Suðurverk. Eftirlit er í höndum VSB. 

  • Aðstandendur þriðja áfanga framkvæmda við Arnarnesveg. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum