Hoppa yfir valmynd
11. september 2023 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2024

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2024. Sjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.

Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir er snúa að:

  • Öryggi ferðamanna.
  • Náttúruvernd og uppbyggingu.
  • Viðhaldi og verndun mannvirkja og náttúru.
  • Fjármögnun undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna áðurgreindra framkvæmda

Sjóðnum er ekki heimilt m.a.:

  • Að bera rekstrarkostnað af mannvirkjum og vegna náttúruverndarsvæða eða annarra ferðamannastaða.
  • Að fjármagna framkvæmdir sem eru á landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.
  • Veita fjármagni til verkefna sem þegar er lokið.
  • Gæði umsókna

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel þau lög og reglur sem um sjóðinn gilda og vanda umsóknir sínar í hvívetna. Umsækjendum er bent á að kynna sér gæðaviðmið sjóðsins sbr. gæðamatsblað ásamt frekari upplýsingum um sjóðinn, skilyrði lánveitenda og umsóknarferlið, sem finna má á umsóknarsíðu.

Hvar ber að sækja um?
Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum island.is en hlekkur á umsókn er á umsóknarsíðu.

Umsóknarfrestur
Umsóknartímabil er frá og með 11. september til kl. 13 fimmtudaginn 19. október. Umsóknir sem berast eftir þann tíma koma ekki til álita.

Fyrri úthlutanir
Hér má nálgast upplýsingar um úthlutaða styrki eftir árum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum