Hoppa yfir valmynd
11. september 2023 Innviðaráðuneytið

Rampar settir upp á Sólheimum

Edda Guðmundsdóttir íbúi að Sólheimum sem vígði rampinn  - mynd

Rampur nr. 825 í verkefninu Römpum upp Ísland var opnaður með viðhöfn við Ingustofu á Sólheimum á laugardag. Sextán rampar hafa verið settir upp að Sólheimum, allir af stærri gerðinni. Markmiðið með verkefninu er að setja upp 1500 rampa á landinu öllu en það hefur verið aukið um þriðjung, úr 1000 í 1500 og verklok ákveðinn ári á undan áætlun eða í lok næsta árs.  

Það var Edda Guðmundsdóttir íbúi að Sólheimum sem vígði rampinn en hún styður sig við göngugrind. Við þetta tækifæri sagði Edda: „Það er gott á fá ramp!" og klippti svo á borðann. Halli Valli spilaði á gítar og stjórnaði söng sem Ármann Eggertsson, Guðlaug Jónatansdóttir, og Hanný María Haraldsdóttir fluttu ásamt Sólheimakórnum. Leifur Þór Ragnarsson íbúi á Sólheimum tók ljósmyndir á viðburðinum, sem birtast með fréttinni.

Sigurjón Örn Þórsson, stjórnarformaður Sólheima, sagði í ávarpi sínu að verkefnið Römpum upp Ísland væri trúlega eitt mikilvægasta átak sem gert hefur verið í aðgengismálum á Íslandi í seinni tíð. Hann fagnaði frumkvæði Haraldar Þorleifssonar, sem láti verkin tala. Verkefnið njóti einnig mikilvægs stuðnings stjórnvalda og  fjölda annarra aðila sem lagt hafi verkefninu lið. Sólheimar njóti nú góðs af þessu mikilvæga verkefni og fyrir það væru íbúar og starfsfólk Sólheima afar þakklát.

Verkefnið Römpum upp Ísland hefur þann mikilvæga tilgang að greiða aðgengi hreyfihamlaðra að þjónustu, afþreyingu og þátttöku og stuðlar þannig að auknu jafnrétti. Römpunum er ætlað að veita hreyfihömluðum aukið aðgengi að samfélaginu en stofnaður var sjóður með aðkomu fyrirtækja og opinberra aðila sem stendur straum af kostnaðinum við gerð rampanna.

Forvígismaður rampaverkefnisins er Haraldur Þorleifsson. Með framlagi hans og öflugum stuðningi fjölmargra aðila hefur reynst unnt að gefa rampana. Helstu bakhjarlar verkefnisins eru innviðaráðuneytið og Jöfnunarsjóður sveitarfélaga, Reykjavíkurborg, Össur, Öryrkjabandalagið, Sjálfsbjörg, BM Vallá, Deloitte, Aton JL, Brandenburg, Lex lögmenn, Atlantsolía auk sveitarfélaga á hverjum stað.

  • Sigurjón Örn Þórsson, stjórnarformaður Sólheima, flytur ávarp að viðstöddu fjölmenni - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum