Hoppa yfir valmynd
25. september 2023 Heilbrigðisráðuneytið

Fjarheilbrigðisþjónusta sem gæti gjörbylt geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn

Fjarheilbrigðisþjónusta sem gæti gjörbylt geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn - myndStjórnarráðið
Nýtt meðferðarúrræði á netinu gæti tryggt mun fleiri börnum og forráðamönnum þeirra um allt land árangursríka geðheilbrigðisþjónustu. Háskólinn í Reykjavík og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins vinna saman að verkefninu sem heilbrigðisráðuneytið hefur styrkt með 70 milljóna króna  framlagi. Verkefnið byggist á hugrænni atferlismeðferð (HAM) þar sem foreldrum barna með kvíðaröskun eru kenndar aðferðir til að hjálpa börnum sínum að ná tökum á kvíða. Meðferðin er lágþröskuldaþjónusta sem krefst ekki sjúkdómsgreiningar til þess að tryggja tímanlega þjónustu, svokallaða snemmtæka íhlutun.

Stafræn lausn til að bæta aðgengi að þjónustu 

Foreldramiðuð hugræn atferlismeðferð (FHAM) er gagnreynt úrræði fyrir börn á aldrinum 5-12 ára sem glíma við kvíða og hefur verið veitt hér á landi um nokkurt skeið með góðum árangri. Nýmæli þessa verkefnis felst í því að nýta stafrænar lausnir við meðferðina og meta árangur þess fyrirkomulags. Markmiðið er að gera þessa þjónustu aðgengilega öllum, óháð búsetu og að fólk geti nálgast hana hvenær sem því hentar best. Verkefnið byggist á niðurstöðum nýlegra rannsókna á meðferð við kvíðaröskunum barna og þróun stafrænna heilbrigðislausna.

Undirbúningur, innleiðing og árangursmat

Háskólinn í Reykjavík mun leiða verkefnið í samvinnu við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Háskólinn í Oxford tekur einnig þátt í verkefninu ásamt hugbúnaðarfyrirtækinu Bitjam sem sérhæfir sig í þróun stafrænna lausna í heilbrigðisþjónustu. Liður í undirbúningi hefur falist í því að tryggja öryggi gagna, persónuvernd og tengsl við sjúkraskrárkerfi. Nú er komið að innleiðingu sem hefst hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og í framhaldi af því hjá heilsugæslunni um allt land. Á tímabili verkefnisins mun Háskólinn í Reykjavík rannsaka árangurinn af meðferðinni, skoða hvaða hópum meðferðin gagnast helst og meta ánægju notenda. 

„FHAM er metnaðarfullt nýsköpunarverkefni sem fellur vel að stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til 2030. Þar er m.a. lögð áhersla á að efla fræðslu, heilsueflingu, þverfaglega teymisvinnu og að auka aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu sem þetta verkefni uppfyllir. Við höfum lagt mikla áherslu á að auka aðgengi fólks að árangursríkum lausnum og hér gefst tækifæri til að efla geðheilbrigði barna um land allt ef verkefnið reynist vel“, segir Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra. 

„Heilsugæslan fagnar bæði þessu frábæra úrræði og því þverfaglega samstarfi sem það felur í sér. Það samrýmist sýn heilsugæslunnar að auka aðgengi að gagnreyndum úrræðum vegna kvíðavanda barna. Þetta verkefni ætti að gagnast mörgum börnum á Íslandi og styrkja foreldra í þeirra mikilvæga hlutverki“,  segir Sigurrós Jóhannsdóttir, leiðtogi sálfræðiþjónustu fyrir börn og unglinga hjá Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins.

„Þetta er mjög spennandi samstarf sem felur í sér skemmtilegar áskoranir. Með nýjungar í hönnun og þróun stafrænna heilbrigðislausna og þekkingu okkar á meðferðarúrræðum að vopni getum við með þessu verkefni aukið aðgengi að heilbrigðisþjónustu fyrir börn sem glíma við kvíða. Það er von okkar að verkefni þetta leiði til bættrar líðan hjá börnum og valdefli foreldra til að takast á við kvíðavanda barna sinna á landinu öllu“, segir dr. Brynjar Halldórsson, dósent í sálfræði við Háskólann í Reykjavík.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum