Hoppa yfir valmynd
2. október 2023 Matvælaráðuneytið

Kynningarfundur á stefnumótun í lagareldi haldinn 4. október

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra mun kynna drög að nýrri stefnumótun lagareldis sem unnin hefur verið á vegum matvælaráðuneytisins. Kynningin verður haldin í Club Vox sal á 1. hæð Hilton Reykjavík Nordica, nk. miðvikudag 4 október, kl. 10.30.

Streymt verður frá fundinum. Að lokinni kynningu ráðherra mun Kolbeinn Árnason skrifstofustjóri matvæla fara nánar yfir helstu markmið stefnumótunarinnar til 2040 og fyrirliggjandi aðgerðir sem ná til ársins 2028.

Stefnan verður birt á samráðsgátt stjórnvalda sama dag og kynningin fer fram, 4. október, þar geta hagaðilar og almenningur geta komið athugasemdum á framfæri. Lagareldi er samheiti yfir sjókvía-, land-, þörunga- og úthafseldi.

Streymi frá kynningu verður aðgengilegt hér.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum