Hoppa yfir valmynd
3. október 2023 Matvælaráðuneytið

Streymt frá kynningarfundi um stefnumótun í lagareldi

Streymt verður frá kynningarfundi um stefnumótun í lagareldi sem fram fer miðvikudaginn 4. október á Hilton Nordica kl. 10.30.

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra mun þar kynna drög að nýrri stefnumótun í lagareldi sem unnin hefur verið á vegum matvælaráðuneytisins. Að lokinni kynningu ráðherra mun Kolbeinn Árnason skrifstofustjóri matvæla fara nánar yfir helstu markmið stefnumótunarinnar til 2040 ásamt fyrirliggjandi aðgerðum sem ná til ársins 2028.

Stefnan verður einnig birt á samráðsgátt stjórnvalda sama dag og kynningin fer fram. Þar geta hagaðilar og almenningur komið athugasemdum á framfæri. Lagareldi er samheiti yfir sjókvía-, land-, þörunga- og úthafseldi.

Streymi frá kynningu verður aðgengilegt.

Skýrslan er aðgengileg hér.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum