Hoppa yfir valmynd
27. október 2023 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Auglýst eftir umsóknum í Mennta­rannsókna­sjóð

Menntarannsóknasjóður mennta- og barnamálaráðherra styrkir hagnýtar menntarannsóknir á sviði leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og frístundastarfs. Umsóknarfrestur rennur út 23. nóvember, kl. 15:00.

Markmið Menntarannsóknasjóðs er að styrkja stoðir hagnýtra menntarannsókna, auka tækifæri til að skapa og miðla þekkingu til framþróunar og farsældar í skólastarfi og styðja við framkvæmd menntastefnu. Styrktarflokkar eru tveir: Verkefnisstyrkir og doktorsnemastyrkir.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel reglur Menntarannsóknasjóðs á heimasíðu sjóðsins áður en hafist er handa við gerð umsóknar.

Rannsóknaráherslur:

  • Nám og kennsla nemenda með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn og fjöltyngi
  • Menntun og farsæld barna og ungmenna og þverfagleg samvinna milli skólastiga og þjónustukerfa
  • Þróun kennsluhátta í íslensku, stærðfræði og náttúrugreinum á grunn- og framhaldsskólastigi
  • Læsi og námsorðaforði
  • Kennaraspá fyrir leik-, grunn- og framhaldsskólastig (nýliðun, brotthvarf og starfsumhverfi)
  • Farsælt frístundastarf fyrir börn á aldrinum 6-18 ára.

Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís sem annast umsýslu sjóðsins. Umsóknir og fylgigögn geta verið á íslensku eða ensku.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum