Hoppa yfir valmynd
3. nóvember 2023 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Finnur Bjarnason hefur verið ráðinn verkefnisstjóri vegna stofnunar þjóðaróperu

Menningar- og viðskiptaráðuneytið hefur ráðið Finn Bjarnason sem verkefnisstjóra vegna stofnunar þjóðaróperu. Ráðningin er til eins árs. 

Finnur er menntaður í óperusöng og hefur lokið meistaragráðu í menningarstjórnun frá Bifröst með hæstu einkunn. Hann var um árabil fastráðinn söngvari við Komische Oper í Þýskalandi og hefur sem atvinnumaður og einsöngvari einstaka reynslu. Eftir nám á Bifröst hefur Finnur lagt stund á rannsóknir í menningarstjórnun við Bifröst.

Alls sóttu 12 um starfið en einn dró umsókn sína til baka. Það var skoðun undirbúnings- og ráðgjafanefndar vegna stofnunar þjóðaróperu að Finnur Bjarnason uppfyllti best þau skilyrði sem sett voru fram í auglýsingu um starf verkefnisstjóra og var hann talinn standa öðrum umsækjendum framar. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum