Hoppa yfir valmynd
3. nóvember 2023 Matvælaráðuneytið

Greiðslumark mjólkur samþykkt fyrir 2024

Greiðslumark mjólkur samþykkt fyrir 2024 - myndiStock/anusorn nakdee
Framkvæmdanefnd búvörusamninga hefur samþykkt að greiðslumark mjólkur á árinu 2024 verði 151,5 milljónir lítra. Það nemur 1,7% aukningu frá yfirstandandi ári, eða 2,5 milljónum lítra.

Hækkun greiðslumarksins er tilkomin vegna aukinnar sölu mjólkurafurða. Bændum verður heimilt að setja fyrrgreint magn á innanlandsmarkað á næsta ári og fá opinbert lágmarksverð fyrir sem nú nemur tæpum 130 krónum á lítra.

Til að kúabændur hafi svigrúm til að aðlagast, er ákvörðunin tekin og tilkynnt á sambærilegum tíma og á síðasta ári. Sala mjólkurafurða hefur aukist síðustu ár, t.a.m. var greiðslumarkið 144 milljónir lítra árið 2017, 145 milljónir árin 2018-2021, 146,5 milljónir lítra fyrir 2021, 149 milljónir lítra á þessu ári og fer í 151,5 á því næsta.

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra mun gefa út reglugerð vegna greiðslumarksins síðar á árinu og mun hún taka gildi 1. janúar 2024.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum