Hoppa yfir valmynd
14. nóvember 2023 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum og unnum kjötvörum frá Bretlandi

 Auglýsing um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum og
unnum kjötvörum frá Bretlandi.
 
Með vísan til sérstaks samnings milli Íslands, Noregs, Liechtenstein og Bretlands um viðskipti með 
landbúnaðarvörur, á grundvelli 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993 og 12. gr. tollalaga nr. 88/2005 og 
til reglugerðar um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum og unnum kjötvörum frá 
Bretlandi nr. 1175/2023, er hér með auglýst  eftir  umsóknum  um  tollkvóta  fyrir  eftirfarandi  
innflutning  á landbúnaðarvörum, upprunnum í Bretlandi og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 
1. janúar – 31. desember 2024:
 

 

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Úr tollskrárnr.

 

 

kg

%

kr./kg

Úr 0406

Ostur og ystingur (*)

01.01. - 31.12.24

11.000

0

0

0406

Ostur og ystingur

01.01. - 31.12.24

19.000

0

0

1602

Annað kjöt, hlutar af dýrum, blóð eða skordýr, unnið eða varið

skemmdum

01.01. - 31.12.24

18.300

0

0

 

(*) Upprunavörur með vernduðum upprunatáknun (VUT) og/eða verndaðri, landfræðilegri merkingu (VLM) sem fellur undir 0406. 
 
(*) Upprunavörur með vernduðum upprunatáknun (VUT) og/eða verndaðri, landfræðilegri merkingu (VLM) 
sem fellur undir tollskrárlið 0406.
 
Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í 
tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Berist umsóknir um meira magn innflutnings vara úr vörulið úr 
0406(*) en auglýstum tollkvóta nemur skal tollkvótanum úthlutað eftir hlutkesti. Úthlutun er ekki 
framseljanleg.
 
Umsóknar- og tilboðsferli vegna úthlutunar tollkvótans fer fram með rafrænum hætti á vefkerfinu 
tollkvoti.is. Nýskráning notenda í vefkerfið fer fram hjá matvælaráðuneytinu. Ef óskað er eftir 
nýskráningu notenda skal hafa samband við skrifstofu landbúnaðar í síma 545-9700 eða eða á 
[email protected]. Sjá tengla fyrir nánari upplýsingar um vefkerfið og leiðbeiningar.
 
Opnað verður fyrir umsóknir á tollkvoti.is; þriðjudaginn 14. nóvember 2023 og skulu umsóknir berast 
fyrir kl. 23.59, þriðjudaginn 21. nóvember 2023.
Matvælaráðuneytinu, 14. nóvember 2023.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum