Hoppa yfir valmynd
14. nóvember 2023 Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisþing 2023 í streymi

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra flytur ávarp á heilbrigðisþingi 2023 - mynd

Heilbrigðisþing 2023 fer fram í Hörpu í dag. Hægt er að fylgjast með í beinu streymi á síðu þingsinsDagskráin er afar metnaðarfull og með norrænu og alþjóðlegu yfirbragði.  Þingið fer fram á ensku og hefur yfirskriftina: „Data and Digitalization: Crafting the Future of Sustainable Healthcare.“ Á dataforhealthcare.is eru allar upplýsingar um dagskrána og fyrirlesarana.

Þetta er sjötta árið í röð sem heilbrigðisráðuneytið efnir til heilbrigðisþings þar sem áhersla er alltaf lögð á að fjalla um mikilvæg málefni sem varða heilbrigðiskerfið og heilbrigðisþjónustu í nútíð og framtíð.  Að þessu sinni verður sjónum beint að tækifærunum sem felast í nýtingu margvíslegra heilbrigðisgagna, stafrænnar þjónustu og gervigreindar. 

 

Heilbrigðisþing 2023 fer fram í Hörpu þriðjudaginn 14. nóvember

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum