Hoppa yfir valmynd
16. nóvember 2023 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Dagur íslenskrar tungu 2023: Er þetta málið?

Í dag er haldið upp á dag íslenskrar tungu í 28 sinn. Venju samkvæmt verða Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar afhent ásamt viðurkenningu dags íslenskrar tungu. Sýnt verður beint frá hátíðardagskránni hér á vef Stjórnarráðsins.

Markmið með Viku íslenskunnar 2023 er að auka meðvitund og umræðu um málefni íslenskrar tungu, og fagna því sem vel er gert.

Íslenskan er aðalmálið

Að þessu sinni var aðdragandi viku íslenskunnar einnig nýttur til þess að vekja athygli á þeim breytingum sem eru að verða og hafa orðið á íslenskunni vegna enskra áhrifa. Við skoðum hvernig þær breytingar birtast í okkur vítt og breitt í samfélaginu, á samfélagsmiðlum og jafnvel í opinberri umræðu.

Vitundarvakningin er unnin í samstarfi við auglýsingastofuna Brandenburg. Henni er ætlað að ýta við fólki, stjaka við því, hnippa í það og jafnvel gefa því olnbogaskot. Dæmin eru ekki valin út í bláinn heldur sýna þau tungutak sem hugsanlega endurspeglar nýjan veruleika íslenskrar tungu.

Ráðherranefnd um íslenska tungu

Þingsályktunartillaga menningar- og viðskiptaráðherra um aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu 2023–2026 verður brátt lögð fram á Alþingi. Ráðgert er að ráðherrarnir fimm sem sæti eiga í ráðherranefnd um málefni íslenskunnar muni kynna aðkomu sína, áherslumál og forgangsverkefni á opnum fundi síðar í mánuðinum. Í ljósi aðstæðna verður tímasetning þess kynningarfundar kynnt síðar.

Nefndin var sett á laggirnar í nóvember 2022, að tillögu forsætisráðherra. Hlutverk hennar er að efla samstarf milli ráðuneyta um málefni íslenskrar tungu og tryggja samhæfingu þar sem málefni skarast. Auk forsætisráðherra eiga menningar- og viðskiptaráðherra, mennta- og barnamálaráðherra, félags- og vinnumarkaðsráðherra og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra fast sæti í nefndinni.

Bein útsending frá hátíðardagskrá klukkan 16:00

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum