Hoppa yfir valmynd
21. nóvember 2023 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Styrkir til menningarsamstarfs milli Noregs og Íslands

Norsk stjórnvöld leggja árlega til framlag til norsks-íslensks menningarsamstarfs. Markmið framlagsins er að stuðla að fjölbreyttu menningarsamstarfi milli Noregs og Íslands.

Þau sem starfa á sviði lista og menningar í Noregi og á Íslandi geta nú sótt um styrki til fjölbreyttra samstarfsverkefna á sviði menningar sem skapa tengsl milli listamanna, þeirra sem starfa við menningarmál og menningarstofnana í báðum löndum.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrkina og er umsóknafrestur til 5. desember nk. Norska menningarráðið (Norsk Kulturdirektoratet ) og menningar- og viðskiptaráðuneytið taka umsóknirnar til umfjöllunar.

Umsækjendur verða að fylla út umsóknareyðublað á vef norska menningarráðsins. Æskilegt er að umsóknir séu skrifaðar á norsku, dönsku, sænsku eða ensku. Umsóknarfrestur um styrki rennur út þann 5. desember nk.

Sjá einnig: 

Norsk-íslenskt menningarsamstarf

Vefur norska menningarráðsins

Umsóknareyðublaðið

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum