Hoppa yfir valmynd
24. nóvember 2023 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Seinni úthlutun Hljóðritasjóðs 2023

Tilkynnt hefur verið um seinni úthlutun úr Hljóðritasjóði árið 2023. Á umsóknarfresti 15. september 2023 bárust alls 180 umsóknir frá mismunandi greinum tónlistar. Stjórn Hljóðritasjóðs veitir samtal 24 milljónum til 70 hljóðritunarverkefna. Sótt var um rúmlega 164 milljónir króna.

Styrkupphæðir eru á bilinu 200 til 800 þúsund krónur. Hæstu styrki fá Axel Flóvent Daðason, fyrir verkefnið Away from this dream og Sandrayati Royo Fay, fyrir verkefnið Sandrayati LP2 eða 800 þúsund krónur hvor.

Hljóðritunarsjóður styrkir aðeins verkefni til hljóðritunar á nýrri íslenskri tónlist. Stjórn sjóðsins veitir ekki framhaldsstyrki til hljóðritunarverkefna sem þegar hafa verið styrkt af sjóðnum eða áður styrkt af Tónlistarsjóði.

Lista yfir umsækjendur sem hlutu styrk að þessu sinni má sjá hér fyrir neðan. 

1700 Súrkál ehf. - Hljóðritun á nýrri tónlist Snorra Helgasonar - 700.000
Agnar Eldberg Kofoed Hansen - Gardening (vinnuheiti) - 300.000
Alda Music ehf. - Birgir - breiðskífa II - 600.000
Alda Music ehf. - Kári - breiðskífa II - 400.000
Alda Music ehf. - mt. fujitive breiðskífa - 300.000
Alda Music ehf. - ISSI - breiðskífa - 300.000
Alison Grace MacNeil - Laura Secord LP2 - 200.000
Anna Sóley Ásmundsdóttir - Painting Reality Photographing Fiction - 250.000
Annalísa Hermannsdóttir - Annalísa - Fyrsta breiðskífa í fullri lengd - 200.000
Axel Flóvent Daðason - Away From This Dream - 800.000
Bára Gísladóttir - IcelandSympOrchestra recording Gísladottir\'s works - 700.000
Birkir Freyr Matthíasson - Divertimento fyrir málmblásarakvintett - 300.000
Birnir Sigurðarson - Ár óttans (vinnuheiti) - 500.000
Björgúlfur Jes Einarsson - Reykjavík Syndrome - 300.000
Björn Óli Harðarson - BEAR THE ANT - 300.000
Bryndís Guðjónsdóttir - Faldir fjársjóðir - vinnutitill - 350.000
Eiríkur Stephensen - Hljóðrás dauðans - 250.000
Eyþór Gunnarsson - Dúettar - 700.000
Freysteinn Gíslason - Þriðja plata kvartetts Freysteins í fullri lengd. - 300.000
Fríða Dís Guðmundsdóttir - Fríða Dís - The Boathouse - 400.000
Gabríel Örn Ólafsson - Gabríel Ólafs - Chamber Works - 600.000
Gunnar Lárus Hjálmarsson - Fyrir / eftir (Vinnuheiti) - 400.000
Gyða Valtýsdóttir - R-O-R - 400.000
Halldór Eldjárn - Halldór Eldjárn – Lífræn raftónlist með Cirrus - 300.000
Hallgrímur Óskarsson - Fyrsta sólóplata - Hallgrímur Óskarsson - 300.000
Hákon Aðalsteinsson - Sjötta breiðskífa The Third Sound - 200.000
Helga M Marzellíusardóttir - Upptökur á tveimur kórverkum samin fyrir Spectrum - 250.000
Hera Lind Birgisdóttir - Upptaka á breiðskífu - 400.000
Herdís Stefánsdóttir - Kónguló LP - 300.000
Hrafnkell Örn Guðjónsson - Genatónar - 200.000
Iceland Sync Management - Bleed - 300.000
Ingi Bjarni Skúlason - Hope - ný plata með jazzkvartett - 300.000
John Patrick Mc Cowen - Pressure Chords - 200.000
Jóhann Guðmundur Jóhannsson - Tumi fer til tunglsins - 700.000
Jóhann Kristófer Stefánsson - Joey 3 - 250000
Jóhannes Birgir Pálmason - í formi úlfs - 250000
Jón Frímannsson - Draumur um Bronco - 300000
Júlí Heiðar Halldórsson - Júlí Heiðar - Plata - 300.000
Katrín Helga Ólafsdóttir - K.óla - Hljóðblöndun á plötu - 200.000
Kjartan Ólafsson - Hljóðblöndun og útgáfa á hljómsveitarverkinu MAR - 200.000
Kristín Sveinsdóttir - Ný íslensk sönglög: Við gengum fram á dauðan lunda - 300.000
Kvennakórinn Vox Feminae - Hljóðritun tónverka - 200.000
Ljótu hálfvitarnir ehf - Ljótu hálfvitarnir – plata sjö - 500.000
Magnús Jónsson - Breiðskífan Rætur eftir Steinu og Gnúsa - 400.000
Marína Ósk Þórólfsdóttir - Marína Ósk - þriðja plata - 400.000
Markús Loki Gunnarsson - Hamfarir hugans - 200.000
Michael Richardt Petersen - Popera/Musicall - 200.000
Mix ehf. - Langi Seli&Skuggarnir: Ég um þig og Gefur á bátinn - 200.000
Ómar Guðjónsson - Sveitasöngvar - 300.000
Ragnar Árni Ólafsson - Vitmót - 200.000
Record Records ehf. - Ný breiðskífa með Lödu Sport - 250.000
Róló ehf. - Astrotourists - fyrsta breiðskífa - 300.000
Rósa Guðrún Sveinsdóttir - Önnur sólóplata Rósu Guðrúnar - 350.000
RVH slf. - Pottþétt FLOTT - 400.000
Sandrayati Royo Fay - Sandrayati LP2 - 800.000
Schola Cantorum,kammerkór - Nýir sálmar - 300.000
Sjósteinn ehf. - píla - Breiðskífa - 300.000
Skúli Arason - Hljómplata - Við erum hér núna - 200.000
Smekkleysa S.M. ehf. - Purrkur Pillnikk - Orð fyrir dauða - 300.000
Smekkleysa S.M. ehf. - Áskell Másson - 250.000
Sólfinna ehf. - Ný lög við ljóð Jóns úr Vör - 400.000
Spindrift Theatre, félagasamtök - Ástin ein taugahrúga, enginn dans við Ufsaklett - 300.000
Stephan Stephensen - Les Aventures de President Bongo - 200.000
Svikamylla ehf. - 2. breiðskífa HATARA - 700.000
Tatjana Dís Aldísar Razoumeenko - Tatí - Sólóplata - 200.000
Torfi Tómasson - EITT - Fyrsta breiðskífa Torfa - 200.000
Tónlistarfélagið Mógil - Mógil - vor/upphaf - 250.000
Zoe Ruth Erwin - Suffragette - 400.000
Þorsteinn Eyfjörð Þórarinsson - Skruð - gagnvirkt hljóð og ljós verk - 250.000
Þórður Ingi Jónsson - Demonic Activity - 250.000

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum