Hoppa yfir valmynd
26. nóvember 2023 Utanríkisráðuneytið

Vegna átaka í Síerra Leóne

Utanríkisráðuneytið er í sambandi við 14 Íslendinga í Síerra Leóne vegna átaka sem brutust út í höfuðborginni Freetown í nótt. Íslendingarnir eru allir óhultir en á meðal þeirra eru tveir starfsmenn sendiráðs Íslands í Freetown og tveir fjölskyldumeðlimir. 

Samkvæmt tilkynningu frá stjórnvöldum í Síerra Leóne brutust út átök í kjölfar tilraunar þungvopnaðra manna til þess að brjótast inn í vopnageymslu hersins í höfuðborginni. Þá hafi verið ráðist á nokkur fangelsi í borginni og fangar ýmist frelsaðir eða numdir á brott. Útgöngubann hefur verið sett á í öllu landinu til þess að gefa hernum rými til þess að athafna sig, að því er fram kemur í tilkynningu stjórnvalda. 

Á þessum tímapunkti hefur engin ákvörðun verið tekin um brottflutning Íslendinga, en utanríkisráðuneytið og starfsfólk sendiráðsins fylgist náið með stöðu mála og er í reglulegum samskiptum við samstarfsríki.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum