Hoppa yfir valmynd
28. desember 2023 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Laus störf í mennta- og barnamálaráðuneytinu

Hinn 1. apríl nk. tekur til starfa ný þjónustu- og þekkingarstofnun sem starfar í þágu barna og ungmenna á sviði menntamála. Nýju stofnuninni, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, er ætlað að styðja skólasamfélagið þannig að öll börn njóti framúrskarandi menntunar og farsældar. Á sama tíma verður greiningarhæfni mennta- og barnamálaráðuneytisins aukin og stjórnsýsla menntamála í ráðuneytinu efld. Miðstöðin hefur störf 1. apríl 2024 og kemur í stað Menntamálastofnunar sem verður lögð niður.

Í tengslum við þessar breytingar auglýsir mennta- og barnamálaráðuneytið eftir starfsfólki í ný störf hjá ráðuneytinu frá 1. apríl 2024. Fram undan eru mörg spennandi og metnaðarfull verkefni þar sem móta þarf ný vinnubrögð og nálgun.  Ef þú finnur þig í faglegu og skemmtilegu vinnuumhverfi þar sem starfsfólk brennur fyrir umbótum á sviði menntamála þá gætu þetta verið störf fyrir þig.

Umsóknarfrestur er til 2. janúar 2024.

Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar:

  1. Sérfræðingur – námsbrautir framhaldsskóla
  2. Lögfræðingar – stjórnsýsla menntamála
  3. Sérfræðingur – PISA
  4. Sérfræðingur – TALIS
  5. Sérfræðingur – Eurydice
  6. Sérfræðingur – ytra mat og eftirlit
  7. Sérfræðingur – greining, fjármál og gagnaumsjón PISA

Nánari upplýsingar um hvert starf má finna á starfatorg.is.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum