Hoppa yfir valmynd
4. janúar 2024 Matvælaráðuneytið

Land og skógur hefur starfsemi

Um áramótin tók til starfa ný stofnun matvælaráðuneytisins, Land og skógur, sem fer með málefni landgræðslu og skógræktar á landsvísu. Ágúst Sigurðsson var skipaður forstöðumaður í september 2023 og hefur hin nýja stofnun tekið við hlutverkum Landgræðslunnar og Skógræktarinnar.

Hugmyndinni um sameiningu stofnanna tveggja hefur verið varpað nokkrum sinnum fram í gegnum tíðina en varð loks að veruleika í júní árið 2023 þegar frumvarp Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um sameiningu Landgræðslunnar og Skógræktarinnar varð að lögum á Alþingi.

Fyrsta heildarstefnan í landgræðslu og skógrækt, Land og líf, var birt ásamt aðgerðaáætlun í ágúst árið 2022 og mun nýtast nýrri stofnun vel í sinni framtíðarstarfsemi.

„Þetta eru mjög ánægjuleg tímamót,“ sagði matvælaráðherra. „Við sameiningu þessara systurstofnana skapast tækifæri til að nýta enn betur þá miklu þekkingu sem þar er að finna og vinna á enn markvissari hátt að sjálfbærri nýtingu lands ásamt uppbyggingu og endurheimt vistkerfa.“

Nánar um Land og skóg

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

13. Aðgerðir í loftslagsmálum
17. Samvinna um markmiðin
15. Líf á landi
14. Líf í vatni
9. Nýsköpun og uppbygging
11. Sjálfbærar borgir og samfélög

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum