Hoppa yfir valmynd
19. janúar 2024 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Pælt í PISA – næstu fundir

Mennta- og barnamálaráðuneytið vekur athygli á opinni fundaröð um niðurstöður PISA-rannsóknarinnar 2022. Næsti fundur, Pælt í PISA – Greining á stöðu læsis, fer fram 23. janúar kl. 15:00–16:30 hjá Menntavísindasviði Háskóla Íslands í Stakkahlíð.

Á fundinum mun Guðmundur Bjarki Þorgrímsson, sérfræðingur við Menntamálastofnun, gefa yfirlit yfir niðurstöður PISA 2022 á stöðu læsis og Sigríður Ólafsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, rýna dýpra í niðurstöðurnar. Umræður verða í kjölfarið.

Fundarstjóri og stjórnandi umræðna er Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor við Menntavísindasvið HÍ.

Hægt er að fylgjast með fundinum á netinu og verður hann tekinn upp.

Alls verða haldnir sjö fundir á vegum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, mennta- og barnamálaráðuneytisins, Menntamálastofnun, Kennarasambands Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Markmið fundanna er að kafa dýpra í niðurstöður PISA.

Pælt í PISA – næstu fundir:

Fyrsti fundurinn var haldinn á mánudag og fjallaði um greiningu á stöðu læsis á stærðfræði. Fundirnir eru opnir og eru öll velkomin.

Um PISA

Menntamálastofnun sá um framkvæmd PISA-rannsóknarinnar sem lögð var fyrir alla nemendur í 10. bekk vorið 2022. Samstarf hefur verið milli Menntavísindasviðs og Menntamálastofnunar um greiningu gagnanna og túlkun niðurstaðanna.

PISA-rannsóknin er lögð fyrir í 72 löndum um heim allan. Könnuð er frammistaða nemenda í stærðfræðilæsi, lesskilningi og náttúrulæsi. Könnunin er framkvæmd á þriggja ára fresti (frestaðist um eitt ár vegna heimsfaraldurs) og gefur vísbendingar um breytingar á frammistöðu nemenda yfir tíma ásamt því að meta stöðu þeirra við lok skyldunáms.

Uppfært 28.02.24 kl. 12:53

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum