Hoppa yfir valmynd
21. janúar 2024 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Kynnti sér fjölbreytt ferðaþjónustufyrirtæki af landsbyggðinni

Frá Mannamótum. - myndMVF

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra heimsótti Mannamót Markaðsstofu landshlutanna sem fram fór í Kórnum í Kópavogi. Mannamót Markaðsstofa landshlutanna er árleg ferðakaupstefna sem haldin er af Markaðsstofum landshlutanna og var lokaviðburður Ferðaþjónustuvikunnar í ár.

Mannamót markaðsstofanna er kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni. Markmið og tilgangur viðburðarins er að skapa vettvang þar sem landsbyggðarfyrirtæki fá tækifæri til að kynna sína þjónustu og vöruframboð fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á höfuðborgarsvæðinu og mynda tengsl innan ferðaþjónustunnar.

„Mannamót dregur fram með mjög skýrum hætti hversu fjölbreytt úrval af flottri afþreyingu og ýmiskonar þjónustu er hringinn í kringum landið. Eitt af áherslumálum mínum sem ráðherra er að stuðla að aukinni dreifingu ferðamanna um landið, sér í lagi utan háannar sem bætir nýtingu innviða í ferðaþjónustu og treystir rekstrargrundvöll fyrirtækja í greininni, segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

Ferðaþjónustuvikunni 2024 er nú formlega lokið en menningar- og viðskiptaráðherra opnaði vikuna með ávarpi á Nýársmálastofu SAF, Íslenska ferðaklasans og KPMG.

Frekari upplýsingar um viðburðina og upptökur má finna á vef Ferðamálastofu

Sjá einnig: 

Ræddi mikilvægi sögustaða og menningararfs í ferðaþjónustu á Íslandi

Opnaði Ferðaþjónustuvikuna 2024

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum