Hoppa yfir valmynd
1. febrúar 2024 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Auglýst eftir umsóknum í Bókasafnasjóð

Auglýst er eftir umsóknum vegna styrkja úr Bókasafnasjóði. Öll bókasöfn sem falla undir bókasafnalög geta sótt um styrki, ein eða í samstarfi með öðrum bókasöfnum eða með aðilum sem hafa það að markmiði að efla bókasöfn í landinu. Umsóknarfrestur er til 15. mars 2024 kl. 15:00.

Bókasafnasjóður styrkir skilgreindar rannsóknir og þróunar- og samstarfsverkefni á sviði bókasafns- og upplýsingamála. Sjóðnum er heimilt að styrkja önnur verkefni til að efla faglegt samstarf bókasafna innanlands og utan. Við úthlutun styrkja í ár njóta forgangs umsóknir sem tengjast markmiðum bókasafnalaga um að efla lestraráhuga og upplýsingalæsi.

Umsóknarfrestur er 15. mars 2024 kl. 15:00.

Umsóknum skal skilað rafrænt. Aðgang að umsóknarkerfi, eyðublöð fyrir skýrslur, matskvarða, ásamt lögum og reglugerðum um sjóðinn o.fl., er að finna á síðu sjóðsins. Nota þarf rafræn skilríki við gerð umsóknar og eingöngu er tekið við rafrænum fylgigögnum.

Hægt er að senda fyrirspurn á [email protected] til að fá nánari upplýsingar eða hringja í 515 5838 / 515 5839.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum