Hoppa yfir valmynd
19. mars 2024 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Sviðslistaráð útdeildi í gær sjö viðbótarstyrkjum til óperuverkefna

Menningar- og viðskiptaráðherra Lilja Dögg Alfreðsdóttir kynnti úthlutunina við athöfn í Safnahúsinu í gær. - myndMynd:Birgir Ísleifur

Sviðslistaráð útdeildi í gær 45 milljónum króna til sjö óperuverkefna leikárið 2024/25. Styrkirnir eru hluti af því viðbótarfjármagni sem sviðslistasjóði var úthlutað á síðasta ári og eru sérstaklega ætlaðir til óperuverkefna með það fyrir sjónum að styrkja og styðja við grasrótar- og önnur sjálfstæð verkefni. Með viðbótarfjármagninu er verið að efla umgjörð óperustarfsemi á Íslandi í því millibilsástandi sem ríkir uns stofnun nýrrar Þjóðaróperu raungerist.

„Ég fyllist tilhlökkun yfir komandi tónlistarári við að sjá hversu mikill kraftur og hugsanafrelsi er í þeim óperuverkefnum sem hér eru kynnt. Fjölbreytnin er ákaflega ánægjuleg og það sannast enn á ný að á Íslandi er ekki vöntun á hugmyndum eða hæfileikum. Það þarf kjark, vinnusemi og ástríðu til að fylgja eftir sjálfstæðum verkefnum og koma þeim til lífs. Ég vona að sem flestir njóti afraksturs þeirrar vinnu sem hér er að blómstra,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

Í upphaflegri úthlutun sviðslistasjóðas fyrir árið 2024 voru tvö óperuverkefni sem fengu stuðning úr sviðslistasjóði og launasjóði sviðslistafólks. Umsóknarfrestur í sviðslistasjóð vegna sérstakra styrkja til óperuverkefna rann út 23. febrúar 2024. Alls bárust 15 umsóknir og sótt var um ríflega 144 milljónir króna.

Eftirtalin óperuverkefni hlutu sérstakan stuðning úr sviðslistasjóði í gær, 18. mars 2024:

Kammeróperan ehf.
Styrkur: 13.000.000 kr.
Sviðslistahópur: Kammeróperan
Forsvarsmaður: Jóna G Kolbrúnardóttir
Heiti verkefnis: Brúðkaup Fígarós í uppsetningu Kammeróperunnar

Lýsing: Kammeróperan setur upp hina sívinsælu gamanóperu Brúðkaup Fígarós eftir Mozart í fyrsta sinn á íslensku. Þó að óperan sé í grunninn kómísk þá eru samt samfélagslegir þættir sem tala til okkar í dag. Líkt og í upprunalegri útgáfu verksins spilar valdaójafnvægi milli stétta aðalhlutverk í söguþræðinum. Það er spennandi áskorun að yfirfæra þennan hluta verksins yfir á nútímasamfélag en Metoo-umræða síðustu ára hefur svo sannarlega dregið fram birtingarmyndir þess valdaójafnvægis sem enn þá ríkir.

Pera Óperukollektíf, félagasamtök
Styrkur: 10.000.000 kr.
Sviðslistahópur: ýmsir
Forsvarsmaður: Guðbjörg Sandholt Gísladóttir
Heiti verkefnis: Óperudagar

Lýsing: Óperudagar munu standa fyrir nokkrum uppfærslum á hátíðinni og leikárinu í ár, m.a. Kastala, Bláskeggs eftir Bartók; CIRCLE e. Finn Karlsson, Óperuhrolli í Öskjuhlíð og Gleðilega geðrofsleiknum eftir Guðmund Stein Gunnarsson.

Sigrún Gyða Sveinsdóttir
Styrkur: 8.500.000 kr.
Sviðslistahópur: Tvöfaldur túrbó í sælunni (TTS)
Forsvarsmaður: Sigrún Gyða Sveinsdóttir
Heiti verkefnis: Skjóta Ópera

Lýsing: Skjóta er ópera jafn löng fótboltaleik sem verður sýnd í Ásmundarsal ásamt innsetningu fyrstu tvær vikurnar í júní samhliða Listahátíð í Reykjavík. Verkið fjallar um fótbolta og loftslagsbreytingar og hvernig hálfleikur í fótbolta getur verið sem myndlíking fyrir tíma ákvarðanatöku í loftslagsmálum. Verkið verður sýnt fjórum sinnum yfir tvær helgar 7. til 15. júní með rými fyrir viðbótarsýningar.


Sviðslistahópurinn Óður
Styrkur: 7.500.000 kr.
Sviðslistahópur: Sviðslistahópurinn Óður
Forsvarsmaður: Sólveig Sigurðardóttir
Heiti verkefnis: Rakarinn frá Sevilla
Lýsing: Gamanóperan „Rakarinn frá Sevilla“ eftir G. Rossini í uppfærslu sviðslistahópsins Óðs í nýrri íslenskri þýðingu í Þjóðleikhúskjallaranum.


Bergþóra Linda Ægisdóttir
Styrkur: 2.500.000 kr.
Sviðslistahópur: Ipsa Ensemble
Forsvarsmaður: Bergþóra Linda Ægisdóttir
Heiti verkefnis: IPSA DIXIT
Lýsing: Ipsa Dixit (ísl. Hún sjálf sagði) er nýtt kammer-leikhús-tónverk, heimspeki-ópera, eftir bandarísku söngkonuna og tónskáldið Kate Soper. Verkið var frumflutt árið 2016 og tilnefnt til Pulitzer verðlaunanna í tónlist árið 2017, The New Yorker kallaði það 21.aldar meistaraverk. Ruglingsleg mörk tónlistar, tungumáls og merkingar eru skoðuð á gáskafullan hátt. Hvernig tjáir maður sig af heilindum? Hvað er list eiginlega að reyna að segja og af hverju getur hún ekki bara sagt það hreint út?

Jóhann Guðmundur Jóhannsson
Styrkur: 2.000.000 kr.
Sviðslistahópur:
Forsvarsmaður: Jóhann Guðmundur Jóhannsson
Heiti verkefnis: Tumi fer til tunglsins

Lýsing: „Tumi fer til tunglsins“ – tónlistarævintýri fyrir baritónsöngvara, barnakór, drengjasópran, sjö manna hljómsveit og sögumann. Í níu sönglögum og leiklesnum sögumannstexta í bundnu máli er rakin ævintýraferð stráksins Tuma á vit karlsins í tunglinu. Flutningstími: 40 mín. Tónlist og texti: Jóhann G. Jóhannsson. Myndskreytingar á tjaldi: Lilja Cardew.

Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir
Styrkur: 1.500.000 kr.
Sviðslistahópur: Ragnheiður Ingunn og Óperudagakvintettinn
Forsvarsmaður: Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir
Heiti verkefnis: Pierrot lunaire á Óperudögum 2024

Lýsing: Meistaraverkið „Pierrot lunaire“ eftir Arnold Schönberg verður flutt í Norðurljósum af syngjandi hljómsveitarstjóranum Ragnheiði Ingunni Jóhannsdóttur, ásamt kvintett skipuðum Rannveigu Mörtu Sarc fiðluleikara, Steineyju Sigurðardóttur sellóleikara, Kristínu Ýri Jónsdóttur flautuleikara, Rúnari Óskarssyni klarinettleikara og Helgu Bryndísi Magnúsdóttur píanóleikara.


Sviðslistaráð starfar samkvæmt ákvæði 15. gr laga nr. 165/2019 um sviðslistir. Hlutverk Sviðslistasjóðs er að efla íslenskar sviðslistir og standa straum af öðrum verkefnum sem falla undir hlutverk og starfsemi á sviði sviðslista með úthlutun fjár úr sjóðnum til atvinnuhópa.

Sviðslistaráð skipa: Hafliði Arngrímsson formaður, án tilnefningar, Pétur Ármannsson, tilnefndur af SAFAS og Þóra Einarsdóttir, tilnefnd af SAFAS.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum