Hoppa yfir valmynd
19. apríl 2024

Fjölmenni við opnun íslenska skálans í Feneyjum

Sýningarskáli Íslands á Feneyjatvíæringnum var formlega opnaður í gær en fulltrúi Íslands í ár er listakonan Hildigunnur Birgisdóttir.

Unnur Orradóttir Ramette, sendiherra Íslands gagnvart Ítalíu, opnaði skálann að viðstöddu miklu fjölmenni. Ljóst er að þátttaka í þessari n.k. heimssýningu nútímalistar er mikill heiður og lyftistöng fyrir þátttakendur sem og íslensku nútímalistasenuna. Sýningin dregur að mörg hundruð þúsund gesti annað hvert ár. Verkin eru gjarnan með samfélagslega og pólitíska skírskotun og eru verk Hildigunnar engin undantekning þar á. Hún rýnir í neyslusamfélagið og fjöldaframleiðslu á gáskafullan hátt. Hefur listakonan þegar vakið töluverða athygli fyrir túlkun sína.

Feneyjatvíæringurinn stendur yfir til 23. nóvember 2024.

  • Hildigunnur Birgisdóttir, fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum í ár, við opnun íslenska skálans, ásamt Dan Byers, sýningarstjóra - mynd
  • Unnur Orradóttir Ramette, sendiherra Íslands gagnvart Ítalíu, opnaði íslenska skálann á Feneyjatvíæringnum að viðstöddu fjölmenni - mynd
  • Fjölmenni við opnun íslenska skálans í Feneyjum - mynd úr myndasafni númer 3
  • Fjölmenni við opnun íslenska skálans í Feneyjum - mynd úr myndasafni númer 4
  • Fjölmenni við opnun íslenska skálans í Feneyjum - mynd úr myndasafni númer 5
  • Fjölmenni við opnun íslenska skálans í Feneyjum - mynd úr myndasafni númer 6
  • Fjölmenni við opnun íslenska skálans í Feneyjum - mynd úr myndasafni númer 7
  • Fjölmenni við opnun íslenska skálans í Feneyjum - mynd úr myndasafni númer 8
  • Fjölmenni við opnun íslenska skálans í Feneyjum - mynd úr myndasafni númer 9
  • Fjölmenni við opnun íslenska skálans í Feneyjum - mynd úr myndasafni númer 10
  • Fjölmenni við opnun íslenska skálans í Feneyjum - mynd úr myndasafni númer 11
  • Fjölmenni við opnun íslenska skálans í Feneyjum - mynd úr myndasafni númer 12

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum