Hoppa yfir valmynd
14. júní 2018

Lektor í rekstrar- og verkefnisstjórnun

Lektor í rekstrar- og verkefnisstjórnun– Viðskiptafræðideild – Félagsvísindasvið – Háskóli Íslands

Laust er til umsóknar fullt starf lektors í rekstrar- og verkefnastjórnun við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. 

Starfssvið
Að taka þátt í þróun og kennslu í grunn- og meistaranámi á sviði rekstrar- og verkefnisstjórnunar.
Að kenna og leiðbeina nemendum á sviði rekstrar- og verkefnisstjórnunar.
Að stunda rannsóknir á sviði rekstrar- og verkefnisstjórnunar.

Menntunar- og hæfnikröfur
Doktorspróf í viðskiptafræði eða skyldum greinum.
Virkni og hæfni í rannsóknum með sýnilegum hætti.
Kennslureynsla á háskólastigi með góðum árangri.
Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.

Við ráðningu verður miðað við að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands.

Ráðið verður í starfið til fimm ára með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf eigi síðar en haustið 2018, um leið og lokið er störfum þeirra nefnda sem um ráðninguna fjalla.  

Umsóknir
Umsóknarfrestur er til og með 7. ágúst 2018. 

Sótt er um starfið á vefsíðu Háskóla Íslands undir laus störf. 

Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni:
1) Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfnikröfur
2) vottorð um námsferil sinn
3) akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)
4) ritaskrá
5) skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
6) greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
7) upplýsingar um þrjá mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við. 

Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn, eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Enn fremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja með umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf sín eftir því sem við á. 

Umsókn og umsóknargögnum sem ekki er skilað rafrænt skal skila í tvíriti til vísindasviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 6, 101 Reykjavík. 

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 og reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Samkvæmt reglum Háskóla Íslands nr. 569/2009, 38. gr. er rektor heimilt að veita framgang í starf dósents eða prófessors við nýráðningu uppfylli viðkomandi þau skilyrði.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og Félags háskólakennara. 

Nánari upplýsingar veitir Ingi Rúnar Eðvarðsson, deildarforseti Viðskiptafræðideildar á netfanginu [email protected] eða í síma 525 5176.

Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í allt að 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests. 

Við ráðningar í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.

Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands er alþjóðlegur rannsóknaháskóli og stærsta kennslu-, rannsókna- og vísindastofnun landsins. Um 1.500 starfsmenn starfa í föstum störfum við skólann og um 2.200 eru lausráðnir. Nemendur við skólann eru um 12.500. Skólinn skiptist í sex grunneiningar, miðlæga stjórnsýslu og fimm fræðasvið. Háskóli Íslands býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli landsins sem býður grunnnám og framhaldsnám á öllum helstu fræðasviðum.

Á Félagsvísindaviði starfa á þriðja hundrað manns að kennslu og rannsóknum. Vísindafólk sviðsins stundar grunnrannsóknir, hagnýtar rannsóknir og þjónusturannsóknir og lögð er mikil áhersla á fjölbreytta miðlun þekkingar, öflugar samræður við íslenskt samfélag og alþjóðlega fræðasamfélagið.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum