Hoppa yfir valmynd
20. janúar 2020

Ljósmóðir - Neskaupstaður - Fæðingardeild - SUMARAFLEYSING 2020

Ljósmóðir - Neskaupstaður - Fæðingardeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands - SUMARAFLEYSING 2020

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar að ráða ljósmóður í sumarafleysingu við fæðingardeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Um er að ræða 70% stöðu eða skv. samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felur í sér að vinna í teymi með tveimur öðrum ljósmæðrum við mæðravernd, fæðingar, sængurlegu og ungbarnavernd.

Hæfnikröfur
Íslensk starfsréttindi ljósmóður. Sónarkunnátta er kostur, en ekki nauðsyn.
Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Ljósmæðrafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. 

Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 70%
Umsóknarfrestur er til og með 03.02.2020

Nánari upplýsingar veitir
Sigríður Kristinsdóttir - [email protected] - 470-1453 & 864-0239 
Eva Mjöll Þorfinnsdóttir - [email protected] - 470-1482 & 776-2443


Nesk. Sjúkrah. Legudeild
Mýrargötu 20

740 Neskaupstaður


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum