Hoppa yfir valmynd
24. júní 1998 Innviðaráðuneytið

Dalabyggð - Boðun fyrsta fundar nýkjörinnar hreppsnefndar

Dalabyggð                                                              24. júní 1998                                                      98060069

Marteinn Valdimarsson sveitarstjóri                                                                                                        1001

Miðbraut 11

370 Búðardalur

 

 

 

 

 

             Vísað er til erindis yðar til félagsmálaráðuneytisins, dagsett 16. júní sl., þar sem óskað er eftir úrskurði ráðuneytisins á því hvernig túlka beri ákvæði 13. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 í framhaldi af sameiningu sveitarfélaga og hver boða hafi átt til fyrsta fundar nýkjörinnar sveitarstjórnar í Dalabyggð.

 

             Um er að ræða þrjá einstaklinga og er staða þeirra sú að allir þrír hafa setið jafnlengi í hreppsnefnd Dalabyggðar og er einn þeirra aldursforseti hreppsnefndarinnar. Hinir tveir eiga að baki lengri setu í sveitarstjórn samtals, þ.e. í sveitarstjórnum sem voru til staðar áður en Dalabyggð varð til við sameiningu sveitarfélaga 1994. Þeir tveir eiga að baki jafnlanga setu í sveitarstjórnum.

 

             Í 2. mgr. 13. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 er svohljóðandi ákvæði: “Sá kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn sem á að baki lengsta setu í sveitarstjórninni kveður hana til fyrsta fundar eigi síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum eftir kosningar og stýrir fundi þar til oddviti hefur verið kjörinn. Hafi tveir eða fleiri fulltrúar í sveitarstjórn átt jafnlengi setu í sveitarstjórninni fer aldursforseti þeirra með verkefni samkvæmt þessari málsgrein.“

 

             Í athugasemdum með breytingartillögu félagsmálanefndar Alþingis við 13. gr. frumvarps til sveitarstjórnarlaga segir svo meðal annars: “Í öðru lagi er tekið á því að sú staða getur komið upp að aldursforseti eigi stuttan feril sem fulltrúi í sveitarstjórn eða jafnvel að hann sé að sitja sinn fyrsta fund. Eðlilegra þykir því að sá sem lengsta reynslu hefur sem kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn stjórni upphafi fyrsta fundar á nýju kjörtímabili.“

 

             Með vísan til framangreindra athugasemda telur ráðuneytið að túlka beri orðalag 2. mgr. 13. gr. laganna svo að líta beri til starfsreynslu í sveitarstjórnum almennt. Af því leiðir að það var hlutverk annars hinna tveggja sveitarstjórnarmanna sem lengsta starfsreynslu hafa samtals að boða til fyrsta fundar nýkjörinnar hreppsnefndar. Samkvæmt lokamálslið 2. mgr. 13. gr. laganna er það sá þeirra sem eldri er sem boða skal fyrsta fund.

 

F. h. r.

 

Sesselja Árnadóttir (sign.)

Elín Blöndal (sign.)

 

 

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum