Hoppa yfir valmynd
23. apríl 2003 Dómsmálaráðuneytið

Auglýsing vegna framlagningar kjörskráa

Kjörskrár vegna kosninga til Alþingis sem fram eiga að fara laugardaginn 10. maí 2003 skulu lagðar fram eigi síðar en miðvikudaginn 30. apríl 2003.

Framlagning Kjörskráa



Kjörskrár vegna kosninga til Alþingis sem fram eiga að fara laugardaginn 10. maí 2003 skulu lagðar fram eigi síðar en miðvikudaginn 30. apríl 2003.
Kjörskrá skal leggja fram á skrifstofu sveitarstjórnar eða á öðrum hentugum stað sem sveitarstjórn auglýsir sérstaklega. Kjörskrá skal liggja frammi á almennum skrifstofutíma til kjördags.
Þeim sem vilja koma að athugasemdum við kjörskrá er bent á að senda þær hlutaðeigandi sveitarstjórn. Athygli er vakin á því að sveitarstjórn getur allt fram á kjördag gert leiðréttingar á kjörskrá, ef við á.


Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 22. apríl 2003.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum