Hoppa yfir valmynd
13. mars 2019

Sérfræðingur í málefnum framhaldsskóla

Sérfræðingur í málefnum framhaldsskóla

Menntamálastofnun leitar að metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi starfsmanni með mikla þekkingu og áhuga á málefnum framhaldsskóla.

Hlutverk sérfræðings er að veita þjónustu og ráðgjöf í málefnum framhaldsskóla, m.a. um innleiðingu aðalnámskrár framhaldsskóla. Í því felst undirbúningur staðfestingar námsbrautarlýsinga, verkefni á sviði starfsmenntamála og velferðarmála. Sérfræðingur í framhaldsskólamálum hefur umsjón með og tekur þátt í þróunarvinnu vegna upplýsingakerfa og gagnamála er varða framhaldsskólastigið. Í starfinu felst einnig þátttaka í alþjóðlegum samstarfsverkefnum á sviði framhaldsskólamála og verkefnum á sviði framhaldsfræðslu. 

Um er að ræða 100% starf og laun eru greidd samkvæmt samningum fjármálaráðuneytisins og viðkomandi stéttarfélags. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega. 

Menntunar- og hæfnikröfur:
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Þekking og reynsla af málefnum framhaldsskóla skilyrði
Þekking af málefnum framhaldsfræðslu æskileg
Þekking og reynsla af alþjóðlegum samstarfsverkefnum
Góð hæfni í íslensku og ensku og færni í miðlun upplýsinga í mæltu og rituðu máli
Góð þekking á tölvu- og upplýsingatæknimálum
Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum
Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund.

Starfið felur í sér mikil samskipti við aðila bæði innan og utan stofnunarinnar og starfsmaður þarf að vera reiðubúinn til að sinna öðrum þeim störfum sem kunna að þarfnast úrlausnar hjá stofnuninni.

Umsókn um starfið fylgi skrá yfir menntun og starfsferil, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið ásamt upplýsingum um umsagnaraðila. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið. 

Umsókn sendist á [email protected] merkt: Sérfræðingur, framhaldsskóli. Öllum umsóknum verður svarað.  Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út.

Nánari upplýsingar veitir Kolfinna Jóhannesdóttir sviðsstjóri,  í síma 514-7500, netfang: [email protected]

Umsóknafrestur er til og með 1. apríl 2019.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum